153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[16:40]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil hefja mál mitt hér í dag á því að þakka hv. þingmönnum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fyrir samstarfið á liðnum vikum og mánuðum og umfjöllun okkar um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka 22,5%, 22. mars 2022. Þessi yfirferð hefur tekið nokkurn tíma og skýrist fyrst og fremst af eðli málsins og umfangi þess en einnig nokkuð af því sem skýrt kemur fram í áliti minni hluta nefndarinnar, áliti sem sú sem hér stendur undirritar og er samþykk.

Í grunninn fjallar umfjöllun Alþingis um sölu á ríkiseign, hvort sem það er eign ríkisins, almennings í ríkisbanka eða annars konar ríkiseign. Í grunninn fjallar þetta um meðferð opinbers valds. Það er niðurstaða okkar í minni hlutanum, eins og skýrt hefur komið fram í framsögu hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, að rannsókn þessa máls sé ekki lokið, vegna þess að eins langt og skýrsla eða stjórnsýsluúttekt ríkisendurskoðanda nær, eins ágæt og hún er, þá er þar ekki lagður grundvöllur að heildarskoðun málsins. Það er ekki lagður grundvöllur að þeim þætti sölunnar sem fjallar um meðferð opinbers valds að stórum hluta, sem fjallar um það hvernig ráðherrann, ekki bara sem pólitískur ráðherra heldur einnig sem opinber starfsmaður, í krafti sínum sem opinber starfsmaður, fer að lögum og stjórnsýslureglum. Þar held ég að kannski meginágreiningur fulltrúa í minni hluta og meiri hluta nefndarinnar liggi um þetta mál.

Vissulega var umfjöllun nefndarinnar ítarleg, en eins og fram hefur komið þá teljum við í minni hlutanum að málið sé ekki fullrannsakað og færum því og leiðum rök að því að okkur beri hér á hinu háa Alþingi að setja á fót rannsóknarnefnd sem fari ofan í saumana á málinu og hafi til þess allar þær heimildir, að sjálfsögðu, sem slík nefnd hefur lögum samkvæmt og eru færð rök fyrir því í áliti minni hlutans.

Ég hef tekið eftir því, og hv. framsögumaður minnihlutaálitsins nefndi það einnig, að við höfum ekki orðið mikið vör við þær fullyrðingar, alla vega ekki í seinni tíð frá hv. þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og svo Framsóknarflokksins, vonandi kemur það nú reyndar seinna í umræðunni í dag, sem vísuðu til þess í upphafi þessa máls að nú skyldi öllum steinum velt við og ef ég man rétt, frú forseti, var því jafnvel haldið fram að skýrsla Ríkisendurskoðunar væri bara fyrsta skrefið í rannsókn sölunnar. Hvers vegna skyldi það hafa verið? Það er væntanlega vegna þess að hv. þingmenn hafa haft það á tilfinningunni að ekki væri öll sagan sögð og að það þyrfti að kryfja málin til mergjar. Ég vona, frú forseti, að þingmennirnir séu enn þá þeirrar skoðunar.

Þegar skýrsla ríkisendurskoðanda var afhent stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd nú í haust, í október, minnir mig, eða um mánaðamótin október/nóvember, þá gerist það að grunsemdir, a.m.k. mínar og ég held fleiri, um þá meinbugi sem voru á sölunni eru staðfestar. Það er sem sagt staðfest að það er ekki gætt að jafnræði við söluna, það er ekki gætt hlutlægni og það er ekki gætt að gagnsæi. Þar eru kannski þau þrjú efnisatriði samantekin sem mestu máli skipta þegar kemur að meðferð opinbers valds; jafnræði, hlutlægni, gagnsæi. Við fáum t.d. í raun ekki svör við því hvernig þeir voru valdir sem fengu að taka þátt í lokuðu útboði. Við erum ekki enn búin að fá svör við því: Hvers vegna fengu sumir að taka þátt og aðrir ekki? Fram hefur komið, og það er gagnrýnt af hálfu ríkisendurskoðanda, að upplýsingamiðlun hafi ekki verið með þeim hætti sem hún þyrfti að vera, og margoft var gagnrýnt í skýrslu ríkisendurskoðanda, gagnsæi hafi ekki legið fyrir og líka þau viðmið hvað varðar hlutlægnina. Þau viðmið sem voru höfð til hliðsjónar við söluna voru ekki skráð og skjalfest og ekki þannig að hægt sé að fara til baka og bera saman við gjörðirnar. Það varðar þá hlutlægnina; það sé búið að setja niður viðmið, við vitum hver þau eru, hvernig var farið eftir þeim og það sé hægt að færa þannig rök fyrir því. Og auðvitað eru orðin fleyg ummæli starfsmanns Bankasýslunnar um að þetta væri nú kannski frekar list frekar en vísindi að stunda sölu með þessari aðferð, með þessari tilboðsaðferð, sem, eins og við öll vitum var verið að beita hér í fyrsta sinn. Reynslan af henni er sú, frú forseti, að ég held að það sé algerlega eðlilegt og nauðsynlegt að þingheimur staldri við og hugsi það til enda hvort það eigi að halda áfram með sölu á ríkiseign í bönkunum, í þessu tilviki Íslandsbanka. Og ef það er niðurstaða meiri hluta hér að það skuli halda áfram þá þarf að taka mun dýpri og betri umræðu og undirbúning að næstu sölu. Þá þarf allt að liggja fyrir áður en meiri hluti þingsins myndi taka það skref.

Ég nefndi hér í upphafi að ráðherrann væri handhafi opinbers valds og einnig er hann, eins og allir vita, eigandi hlutanna. Hann fer með hlutabréfið eða hlutabréfin í ríkiseignunum fyrir okkar hönd. Það er mjög mikilvægt að allir geri sér grein fyrir því, og það kemur skýrt fram í áliti minni hlutans, að lög nr. 155/2012, um sölu á hlutum ríkisins í bönkunum, leyfa ekki svokallað ytra valdframsal. Það er ekkert í þeim lögum sem leyfir það að ráðherrann framselji vald sitt í þessu tilviki til Bankasýslunnar. Bankasýslan framkvæmir söluna en hún fer algerlega að vilja ráðherrans og vilji og ábyrgð ráðherrans nær frá upphafi til enda í sölunni, allt frá því að hún var sett af stað og fer í það ferli sem við þekkjum og þar til að ráðherra samþykkir söluna, upphæðina og lokaverðið. Það er ekki hægt eins og reynt var hér, ég hef reyndar ekki heyrt mikið um það talað að undanförnu, að halda því fram að hér hafi verið einhvers konar armslengd. Reyndar var það sagt á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að íslenska armslengdin væri stuttur gervihandleggur. Látum það liggja á milli hluta, frú forseti, en ábyrgð ráðherrans er fullkomlega skýr samkvæmt lögum nr. 155/2012 og um hana þarf enginn að efast.

Mig langar líka aðeins að ræða það sem hér hefur fram komið, bæði í andsvörum við hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur og einnig í umræðu um þetta mál almennt. Það að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra bæði um stjórnsýsluúttekt hef ég leyft mér að kalla smjörklípu. Ég kallaði það því nafni daginn sem það var tilkynnt hér á hinu háa Alþingi og ekkert það sem gerst hefur fengið mig ofan af þeirri skoðun, vegna þess að það lá fyrir frá upphafi að við þyrftum að stofna rannsóknarnefnd. Það lá fyrir frá upphafi að málið væri með þeim hætti, þótt ekki væri nema vegna reynslu okkar af bankahruninu árið 2008 og allra þeirra hörmunga sem það kallaði yfir okkur sem samfélag, og það er alveg ljóst að við verðum að velta við hverjum steini. Við verðum að komast til botns í þessu máli. Ég held að það að í nágrannalöndum okkar biðji ráðherrar ekki um slíkar skýrslur sé hluti af þroskuðum pólitískum kúltúr, það snýst ekki um það hvað stendur skrifað inn í löggjöfina. Íslenska löggjöfin um stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er byggð á norskri fyrirmynd. Ef ég man rétt þá hefur norskur ráðherra samkvæmt lögunum þar heimild til að gera þetta. Það bara dettur það engum í hug, af því að ráðherranum, framkvæmdarvaldinu, dettur ekki í hug að taka fram fyrir hendurnar á löggjafanum sem hefur eftirlitshlutverk gagnvart framkvæmdarvaldinu. Það er hluti af þroskuðum pólitískum kúltúr sem okkur ætlar seint að takast að temja okkur hér á hinu háa Alþingi. En vonandi verður þetta mál og önnur slík til þess að við tökum skrefið fram á við en ekki aftur á bak.

Ég vil minna á það hér og ítreka orðin um gagnsæi, jafnræði og hlutlægni, að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra viðurkenndi það á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að jafnræðið, þ.e. þess að jafnræðis hefði ekki verið gætt, væri veikur blettur á sölunni. Það liggur fyrir. Skýrsla Ríkisendurskoðunar er einn samfelldur áfellisdómur yfir skorti á jafnræði, hlutlægni og gagnsæi, einn samfelldur áfellisdómur yfir þessu þrennu.

Sem slík er skýrslan góð, svo langt sem hún nær. En það varð okkur algerlega ljóst þegar Tryggvi Gunnarsson, fyrrverandi umboðsmaður Alþingis, kom á fund nefndarinnar og kom að fyrra bragði með talpunkta til okkar til þess að við gætum betur áttað okkur á því sem hann vildi við okkur segja, að í skýrslu Ríkisendurskoðunar er, eins og hér hefur komið fram í umræðunni, ekki lagður grundvöllur að skoðuninni út frá stjórnsýslulögum og stjórnsýslureglum. Sá grundvöllur er ekki lagður og það er í sjálfu sér brýnt að það komi fram að það er ekki með neinum hætti áfellisdómur yfir vinnu ríkisendurskoðanda eða afmörkun þeirrar úttektar sem hann skilaði Alþingi. Hún liggur fyrir, við höfum margoft farið yfir hana, bæði í nefndinni og hér í þessum ræðustól, liggur fyrir í skýrslu Ríkisendurskoðunar og það er greint frá henni í álitum, bæði meiri hluta og minni hluta. En hún segir okkur líka hversu langt sú skoðun náði. Það sem við í minni hlutanum erum sannfærð um er að skoðunin þurfi að ná lengra. Þess vegna er það svo í áliti minni hlutans að við færum fyrir því góð rök að það þurfi að setja á stofn rannsóknarnefnd sem hefur þær heimildir sem þarf til að skoða málið til fullnustu. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að ef það hefði verið samþykkt hér á hinu háa Alþingi síðastliðið vor, í apríl eða maí, þegar við vorum fyrst að ræða um bankasöluna, að setja á fót rannsóknarnefnd og gefa henni kannski eins og hálft ár til að vinna vinnuna, þá værum við nú að ræða um niðurstöður rannsóknarnefndarinnar og kannski komin til botns í málinu upp á það að gera. Ég ætla ekki að gefa mér það að við værum sammála um niðurstöðurnar en ég ætla alla vega að gefa mér að þá hefðum við nýtt tækifærið til að upplýsa þessa bankasölu algerlega, til að gegnumlýsa það hvað það skiptir miklu máli að meðferð opinbers valds sé í samræmi við lög og reglur stjórnsýsluréttarins m.a. og þannig að almenningur geti treyst því að hér hafi verið vandað til verka og að ríkisvaldið hafi í raun staðið við sinn hluta samningsins við kjósendur um að fá það verð og framkvæma söluna með þeim hætti að traust almennings til stjórnmálanna og bankakerfisins beri ekki skaða af.