153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[16:55]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér álit meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf., frá 22. mars fyrir réttu ári síðan. Mig langar til að byrja á því að taka undir þakkir til samstarfsaðila okkar í nefndinni og sérstaklega langar mig til þess að þakka formanni nefndarinnar því að hún leyfði okkur að sprikla eins og við vildum, bæði í minni og meiri hluta, og ég held að þar hafi ekkert hallað á í því hvað við reyndum að fá bæði gesti og aðra til álits. Það er mikilvægt. En nú þegar svo langur tími er liðinn, heilt ár, sem er ákveðin snúningur frá því að salan á þessum 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka fór fram, og margt er orðið skýrt og margt það sem stjórnarandstaðan hefur lagt upp með í málflutningi sínum á sér ekki neina stoð. Alla vega hefur ekki komið fram neitt sem staðfestir þær áhyggjur sem vissulega sköpuðust í upphafi, ekki bara hjá minni hlutanum heldur meiri hlutanum líka. Ekkert við yfirferð nefndarinnar gefur til kynna að lög og reglur hafi verið brotnar. En umfang okkar var skýrsla Ríkisendurskoðunar og ekkert umfram það.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar var heilt yfir vandað gagn sem varpar skýru ljósi á aðdraganda og framkvæmd sölunnar. Við skulum hafa það í huga að ríkisendurskoðandi er trúnaðarmaður Alþingis og stofnun hans fer með eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins. Ríkisendurskoðun hefur með að gera eftirlit með að fjármunum sé ráðstafað á hagkvæman og réttmætan hátt og í samræmi við ákvarðanir Alþingis. Ég tel að salan á þessum hluta ríkisins sem þarna var seldur hafi heppnast að því marki að gott verð fékkst fyrir hann eða rúmir 52 milljarðar sem við munum geta notað til innviðauppbyggingar samfélagsins og tryggt okkur sterkari stöðu og dregið um leið úr áhættu ríkissjóðs í fjármálarekstri. Fjárhagsleg niðurstaða sölunnar var hagfelld. Auk þess voru markmiðin líka dreift eignarhald og það voru skilaboðin frá okkur á Alþingi, bæði meiri hluta og minni hluta.

Eignarhald íslenska ríkisins á fjármálamarkaði er umfangsmikið vegna viðbragða stjórnvalda eftir hrun fjármálakerfisins árið 2008. Til að halda utan um eignarhluti ríkisins var sérstakri ríkisstofnun komið á fót, Bankasýslunni, sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið. Það var álit stjórnvalda þá að því væri best fyrir komið í armslengd frá pólitíkinni og því hefur ekki verið breytt. Árið 2015 eignaðist íslenska ríkið öll hlutabréf í Íslandsbanka hf. sem hluta af stöðugleikaframlagi Glitnis við uppgjör þrotabús og fer Bankasýsla ríkisins með hlut ríkisins í Íslandsbanka. Stjórnvöld á þeim tíma hafa ætlað að draga úr svo umfangsmiklu eignarhaldi ríkisins á fjármálamarkaði og það hefur verið skrifað í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og þeirrar sem sat á síðasta kjörtímabili. Í eigendastefnu ríkisins frá árinu 2020 kemur fram að stefnt sé að því að selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka þegar hagfelld og æskileg skilyrði séu fyrir hendi.

Svo við snúum okkur að þeirri sölu sem hér ræðir um þá vil ég vitna til álits meiri hlutans um mikilvægustu þætti um gagnsæi og upplýsingagjöf. Þar segir, með leyfi forseta:

„Þau atriði við framkvæmd sölunnar 22. mars 2022 sem hafa hlotið gagnrýni varða gagnsæi og upplýsingagjöf, einkum og sér í lagi atriði varðandi kaupendahópinn, eðli og framkvæmd sölu með tilboðsfyrirkomulagi og markmið sölunnar. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar eru þessi atriði tekin til umfjöllunar.“

Og áfram:

„Að mati meiri hlutans höfðu þau atriði sem hefðu getað verið vandaðri þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins sem var heilt yfir góð en brýnt er að læra af þeim svo að vanda megi framkvæmdina til framtíðar.“

Virðulegi forseti. Við yfirferð okkar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á skýrslu Ríkisendurskoðunar höfum við ekki orðið þess áskynja að t.d. markmiðin með sölu á hlut ríkisins hafi verið í einhverju ósamræmi við hvert annað eða að ekki hafi fengist hæsta mögulega verð fyrir hlutinn. Vissulega voru þessi markmið ekki sett á neina mælistiku, hvernig ætti að fara með þau, en það er ekkert ósamræmi í því. Ég minni á þingnefndir Alþingis, í þessu tilfelli fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd, hafa ríku hlutverki að gegna og ber að yfirfara gögn og skila áliti. Byggist það á ákvæði 2. gr. laga um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Í skýrslunni er á það bent að upplýsingagjöf Bankasýslu ríkisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins hafa ekki verið fullkomin. Nægilega skýrari mynd af því hvað beiting tilboðsfyrirkomulagsins hefði í för með sér hefði átt að undirbúa betur enda var hér í fyrsta skipti um að ræða að tilboðsfyrirkomulagi var beitt við sölu á eignarhlutum ríkisins á fjármálamarkaði. Við í meiri hlutanum teljum að heppilegra hefði verið að gefa gleggri mynd af vægi einstakra markmiða fyrir fram og við leggjum áherslu á að við sölu á eignarhlutum ríkisins ríki fullt gagnsæi og þess gætt að viðeigandi upplýsingar séu auðfengnar.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar koma fram mjög góðar og réttmætar ábendingar sem vert er að halda á lofti. Sá ríkisaðili sem hefur með að gera að fylgja eftir eignastefnu ríkisins varðandi fjármálafyrirtæki á að gefa þeim sem ráðnir eru til að annast söluferlið skýr fyrirmæli og leiðbeiningar um framkvæmd þess. Hann þarf því sjálfur að búa yfir undirstöðuþekkingu á sölumeðferðinni sem ákveðið er að beita. Ríkisendurskoðun bendir réttilega á að hlutlægni verði að gæta við ákvarðanatöku við sölu á eignarhlutum ríkisins. Huglægar forsendur skal forðast sem mest má vera. Þannig má tryggja að viðmið um matskennda þætti eigi tilhlýðilega lagastoð. Til viðbótar skulu viðmið sem hvíla á huglægum forsendum vera skrifleg áður en söluferli hefst. Þannig tryggjum við að beiting þeirra við mat á tilboðum er skjalfest.

Góðir stjórnsýsluhættir eru til þess fallnir að skapa traust á sölu ríkiseigna. Þannig er gætt að því á hverju niðurstaða um úthlutun er reist. Þannig fyrirbyggjum við hagsmunaárekstra og orðsporsáhættu ríkisins.

Að lokum vil ég grípa niður í álitinu, með leyfi forseta:

„Að mati meiri hlutans hefði þurft að gæta betur að upplýsingagjöf um söluaðferðina gagnvart almenningi, sérstaklega þar sem henni hafði aldrei verið beitt áður hér á landi við sölu á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtæki, sem skapaði jarðveg fyrir vantraust á aðferðinni og misskilning um framkvæmd hennar.“

Það er okkur hollt að læra af gagnlegum ábendingum um það sem betur hefði mátt fara svo vanda megi þannig framkvæmdina til framtíðar.