skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Forseti. Hv. þingmaður byrjaði ræðu sína á því að fullyrða að áhyggjur fólks eftir söluna hafi ekki raungerst. Ég myndi vilja byrja á því að segja að nákvæmlega allar áhyggjurnar sem við höfðum hafa einmitt raungerst. Það er sýnt fram á það í skýrslu Ríkisendurskoðunar og miðað við það sem við höfum séð í rannsókn Fjármálaeftirlitsins. Allt sem við bentum á í upphafi málsins hefur raungerst að hafi verið raunverulegar áhyggjur sem var vert að rannsaka og komast að niðurstöðu um hvað hefði gerst. Það er eitt atriði sem er ekki búið að skoða og það er hlutur ráðherra. Ef hv. þingmaður ætlar að fullyrða hérna að engar af áhyggjum okkar, sérstaklega í minni hlutanum, hafi raungerst þá hvet ég hv. þingmann til að nefna eitt dæmi með beinni tilvitnun; eitt dæmi sem fjallar um einhverjar áhyggjur sem við höfðum sem raungerðust ekki, eitt dæmi — mjög einfalt. Þegar verið er að fjalla hér um hvernig lög hafi ekki verið brotin o.s.frv. þá fjallar skýrsla Ríkisendurskoðunar vissulega mjög vel um það, en við erum líka að glíma við það að Fjármálaeftirlitið og Íslandsbanki eru að gera samning um uppgjör vegna þess hvernig aðkoma Íslandsbanka var að þessu máli. Þar er verið að gera samning um það hvernig eigi að ljúka ákveðnum sektum, sem bendir væntanlega til þess að lög hafi verið brotin, maður myndi alla vega áætla það. Þó að við séum ekki búin að fá nánari útskýringar á því þá má alveg fullyrða að það séu góðar líkur á að svo sé, svo ekki sé farið út í hlut ráðherra sem er ekki búið að rannsaka betur.