153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[17:05]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir fyrirspurnina. Hann bað bara um eitt dæmi. Ég vil þá nefna að eftirmarkaðurinn svokallaði er mælikvarði og mælistika á það hvernig — (Gripið fram í.) já, ég er að segja að eftirmarkaðurinn sé sá mælikvarði um hvernig salan hafi tekist. Hann er stöðugur og sterkur. Ég vil nefna þetta sem dæmið sem hv. þingmaður bað um og held að það standist alveg skoðun.