skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Forseti. Ég bað um eitt dæmi um eitthvað sem stjórnarandstaðan hefði haft áhyggjur af. Það var ekkert sem benti til þess að fólk hefði haft einhverjar áhyggjur af eftirmarkaði, ekki svo ég muni. Í rauninni síður en svo, því miðað við tilboðsverðið þá ætti lágt verð að hafa góð áhrif á eftirmarkaðinn eins og gerðist í fyrri sölunni. Þar höfðum við hins vegar áhyggjur af lágu verði og eftirmarkaðurinn sýndi það með því að hækka mikið meira en átti í raun að gerast í eðlilegu fyrirkomulagi slíks útboðs. Þar voru vissulega brotalamir og verðið var vandamál þar. En það var ekki verið að vekja athygli á því eftir söluna síðast að eftirmarkaðurinn væri eitthvað hörmulegur, frekar traustið, traust almennings á því hvernig salan fór fram og á stjórnvöld og stjórnsýsluna. Það endurspeglast ekki endilega í einhverju verði á Íslandsbanka í kjölfarið. Fólk fór mjög varlega með það.
Aftur bið ég um eitt dæmi, með beinni tilvitnun, um áhyggjur sem fólk hafði sem hafa ekki raungerst um það hvað ráðherra gerði, Bankasýslan, söluaðilarnir, kaupendur og þar fram eftir götunum. Eitt dæmi.