skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Virðulegi forseti. Annað dæmi. Það kom fram í vinnu nefndarinnar og ríkisendurskoðandi endurtók það bæði á opnum fundi og lokuðum, að ekkert hefði komið fram í hans vinnu sem stangaðist á við lög. Það voru akkúrat þessi dæmi sem við höfðum áhyggjur af. Strax eftir söluna vöknuðu þessar áhyggjur. Þá var ekki orðið ljóst hvernig eftirmarkaðurinn yrði. Við getum talað um þetta ár sem dæmi um að eftirmarkaðurinn hafi ekki beðið neinn skaða af þessari sölu og ríkisendurskoðandi tók fram oftar en einu sinni að hann hefði ekki rekist á neitt sem benti til þess að það hefði ekki verið farið að lögum og að engin lög hefðu verið brotin. Þarna eru tvö dæmi, gjörðu svo vel. (Gripið fram í.)