skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegur forseti. Flokkur fólksins hefur í grundvallaratriðum verið alfarið á móti því að íslenska ríkið selji eignarhluti sína í Íslandsbanka og öðrum bönkum yfir höfuð, aðallega vegna þess að við teljum að ríkið geti betur nýtt þessar eignir sínar með því að eiga þær heldur en selja þær. Frá því að viðskiptabankarnir þrír voru stofnaðir á grunni tiltekinna eigna og skulda bankanna sem hrundu árið 2008 hafa þeir skilað hundruð milljóna króna hagnaði og ekkert útlit fyrir að það muni breytast í fyrirsjáanlegri framtíð. Stór hluti þessa hagnaðar hefur skilað sér í ríkissjóð í formi arðgreiðslna. Það eina sem mun breytast með sölu þessarar ríkiseignar er að í stað þess að fá arðinn ár eftir ár fær ríkið einskiptisgreiðslu fyrir hlutabréfin en kaupendur þeirra munu svo framvegis hirða arðinn af þeim. Þar að auki hefur eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum í för með sér gullið tækifæri sem sjaldan gefst til að endurskipuleggja fjármálakerfið á þann hátt að það þjóni betur hagsmunum almennings fremur en sérhagsmunum fjárfesta og fjármálamarkaða. Með því að selja þessar eignir frá sér er ríkisstjórnin að kasta þessu sjaldgæfa tækifæri á glæ en það mun gera okkur miklu erfiðara til frambúðar að ráðast í slíka endurskipulagningu sem þó er nauðsynleg og löngu tímabær. Almenningur hefur aldrei verið spurður álits á því hvort það sé yfir höfuð í lagi að leyfa starfsemi stóru viðskiptabankanna í þeirri mynd sem hún er nú starfrækt. Það er miklu stærra mál en sú tiltekna hlutabréfasala sem við ræðum í dag.
Við í Flokki fólksins höfum líka, eins og sumir aðrir flokkar, verið sérstaklega mótfallin því að þeir aðilar sem nú fara með völdin yfir meðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum fái heimild til að selja eitthvað af þeim. Þar hræða sporin vegna ýmissa annarra álitamála sem hafa komið upp og tengjast viðkomandi aðilum, en ég ætla ekki að rekja þau í smáatriðum hér og nú.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022 inniheldur að mörgu leyti ágæta umfjöllun um söluferlið og margvíslega vankanta á því. Ég ætla reyndar að láta það liggja á milli hluta hvort rétt sé að nota orðið áfellisdómur um innihald skýrslunnar því að við lestur hennar kom í ljós að þar er farið nokkuð vægum orðum um þessa mörgu vankanta í ferlinu og þrátt fyrir að það eigi að vera í verkahring Ríkisendurskoðunar að meta hvort starfsemi sé í samræmi við lög og góða starfshætti segir strax í inngangi skýrslunnar, með leyfi forseta:
„Það fellur utan hlutverks Ríkisendurskoðunar að taka afstöðu til ágreiningsefna um lagatúlkun og ber embættinu að gæta varúðar að álykta almennt um túlkun og skýringu laga, enda er öðrum aðilum falið það hlutverk að lögum.“
Það sem stendur upp úr í mínum huga eftir lesturinn, og kemur m.a. fram í því nefndaráliti minni hlutans sem ég stend að, eru ýmis álitaefni sem voru ekki skoðuð og þar af leiðandi ekki svarað fyrir í skýrslunni, ekki síst hvort sölumeðferðin hafi verið í samræmi við gildandi lög og reglur. Ríkisendurskoðun fjallar í skýrslu sinni aðeins lítillega um lagaleg álitaefni og þá eingöngu út frá lögum um Bankasýslu ríkisins og lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Ekki var þó tekin afgerandi afstaða til þess hvort sölumeðferðin hefði verið í fullu samræmi við lög enda taldi stofnunin eins og fyrr segir það ekki vera í sínum verkahring, þó svo að annað megi ráða af þeim lögum sem hún á að starfa eftir.
Eins og Tryggvi Gunnarsson, fyrrverandi umboðsmaður Alþingis og virtur fræðimaður, benti á þegar hann kom fyrir nefndina gilda reglur stjórnsýsluréttarins við ráðstöfun á eignum ríkisins. Þrátt fyrir það vék Ríkisendurskoðun hvergi í skýrslu sinni að því hvort og hvernig sölumeðferðin samræmdist stjórnsýslulögum eða meginreglum stjórnsýsluréttar. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er bent á að upplýsingar þær sem Bankasýslan veitti ráðherra í hinu svokallaða rökstudda mati hafi verið ónákvæmar, bæði hvað varðar fjölda þeirra fjárfesta sem skráðu sig fyrir hlutum og heildarfjárhæð tilboða. Þó að sú afstaða komi fram í skýrslunni að ákvörðun ráðherra um að samþykkja endanlega tillögu Bankasýslunnar um söluna hafi byggst á ónákvæmum og ófullnægjandi upplýsingum er hvergi vikið að því hvort sú framkvæmd hafi samræmst rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar en mikilvægi þeirrar reglu er sérstaklega áréttað í greinargerð með frumvarpi til laga um Bankasýslu ríkisins. Það segir sig sjálft að þegar kemur að ákvarðanatöku um sölu á hverju sem er, hvað þá hlutabréfum, þá skiptir sköpum að hafa áreiðanlegar upplýsingar um fjölda tilboða og tilboðsverð. Þá er beinlínis fullyrt í skýrslunni að eins og tilboðsfyrirkomulagið var afmarkað og útfært hafi það ekki getað tryggt fullt jafnræði þeirra fjárfesta sem því var beint að. Samt er hvergi fjallað um hvort það hafi yfir höfuð verið í samræmi við jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar.
Samkvæmt lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum er það ráðherra sem á að taka ákvörðun um hvort tilboð skuli samþykkt eða þeim hafnað en í greinargerð með frumvarpi til laganna er aðeins gert ráð fyrir því að ráðherra geti falið Bankasýslunni að annast endanlegan frágang vegna sölu eignarhluta, ekki ákvarðanatökuna sjálfa. Þetta vekur óhjákvæmilega upp spurningar um hvort slíkt framsal valds hafi yfir höfuð verið heimilt en hvergi er vikið að því í skýrslunni.
Það liggur fyrir að ráðherra tók ekki ákvörðun um einstaka tilboð heldur samþykkti aðeins að ákveðið magn hlutabréfa skyldi selt á tilteknu verði. Það vakti sérstaklega athygli mína að hvergi í skýrslunni er að finna neina umfjöllun um hvort eða hvernig hafi verið gætt að hæfisreglum við ákvarðanatöku í söluferlinu. Þegar listi yfir kaupendur í útboðinu var birtur kom einmitt í ljós að á meðal þeirra voru aðilar sem eru nátengdir ráðherra. Eftir að skýrslan kom til umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur ríkisendurskoðandi lýst þeirri skoðun sinni að ekki hafi verið ástæða fyrir ábyrgðaraðila sölunnar að gæta að hæfi sínu. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefur líka haldið því fram að honum hafi ekki borið að kanna hæfi sitt gagnvart kaupendum vegna þess að Bankasýslunni hafi verið falið að framkvæma söluna og hann hafi sjálfur ekki haft hugmynd um hverjir stæðu að baki þeim tilboðum sem bárust. Þá hafa fulltrúar Bankasýslunnar beinlínis haldið því fram að hæfisreglur stjórnsýsluréttar hafi ekki átt við um sölumeðferðina vegna þess að þeir vissu ekki sjálfir hverjir stóðu á bak við tilboðin. Þeir sögðust jafnframt ekki hafa vitað að faðir fjármálaráðherra væri eigandi eins þeirra lögaðila sem gerðu tilboð þó svo að fjallað hafi verið um það fyrirtæki í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir bankahrunsins og margoft í fjölmiðlum síðan þá, einmitt vegna fjölskyldutengsla eiganda þess við umræddan ráðherra.
Forseti. Þó að ég sé enginn sérfræðingur í stjórnsýslurétti blasir við mér að þetta hljóti að vera eftiráskýringar gerðar til þess að breiða yfir þá vanrækslu þessara aðila að gæta ekki að hæfi sínu, þrátt fyrir að þeim hljóti að hafa verið skylt að gera það. Mér þykir þetta ekki aðeins ósvífni heldur gæti þetta líka allt eins verið upp úr handriti fyrir leikhús fáránleikans, list en ekki vísindi.
Þetta vekur líka fleiri spurningar sem ekki hefur verið svarað. Er hægt að víkja sér undan hæfisreglum með óheimilu valdframsali? Til hvers eru þá hæfisreglur? Er í lagi að taka svo veigamiklar ákvarðanir sem þessar nánast með bundið fyrir augun? Hvernig er hægt að uppfylla rannsóknarskylduna? Hvernig samræmist það lögum um varnir gegn peningaþvætti ef menn vissu ekki einu sinni hverjum var verið að selja? Hvernig er þá hægt að ganga úr skugga um hverjir væru raunverulegur eigendur lögaðila sem stóðu að baki tilboðum og hvort þeir væru yfir höfuð aðilar sem væri æskilegt að eignuðust banka? Sporin hræða í þeim efnum og strax þegar áform um söluna voru kynnt vöknuðu áhyggjur mínar af hættunni á því að þekktir aðilar úr íslensku viðskiptalífi myndu hugsanlega nýta sér þetta tækifæri til að eignast hlut í banka. Þegar ég segi þekktir á ég ekki við aðila sem eru aðeins þekktir af góðu einu heldur einhverju allt öðru, jafnvel góðkunningja úr bankahruninu. Ég viðraði þessar áhyggjur mínar ítrekað í efnahags- og viðskiptanefnd þegar fyrirhuguð sala var kynnt þar. Þessar áhyggjur þóttu óþarfar því að regluverkið væri orðið svo gott. Þegar listinn yfir kaupendurna var birtur rann mér kalt vatn milli skinns og hörunds við lesturinn því að þá kom á daginn að þessar áhyggjur mínar reyndust ekki aðeins á rökum reistar heldur teiknaðist upp enn verri mynd en mig hafði órað fyrir. Þegar farið var að skoða nánar hverjir stóðu að baki tilboðunum kom nefnilega í ljós að meðal þeirra voru einmitt góðkunningjar úr bankahruninu. Einn þeirra var stjórnarformaður Glitnis, forvera Íslandsbanka, þegar hann fór í þrot. Annar var viðriðinn fléttu í kringum viðskipti með hlutabréf í þeim banka sem voru í besta falli vafasöm. Svo var þar fyrrnefndur faðir fjármálaráðherra sem átti hlut í sama banka og var leystur úr persónulegri ábyrgð fyrir lánum í félagi í hans eigu nokkrum dögum áður en bankinn fór í þrot. Einnig aðili sem er nátengdur einum af stærstu eigendum Glitnis þegar sá banki fór í þrot. Félag sem er stýrt af fyrrverandi varaformanni stjórnar þess banka og félag sem tengist öðrum stórum eiganda í sama banka sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir alvarleg efnahagsbrot tengd hruninu. Þá má nefna félög í eigu bræðra sem voru meðal stærstu eigenda Kaupþingsbanka þegar hann fór í þrot og annar þeirra hlaut fangelsisdóm í kjölfar bankahrunsins. Þeir eru grunaðir um að hafa staðið að baki og notið góðs af kaupum á stórum eignarhlut þegar Búnaðarbankinn var einkavæddur í gegnum erlendan banka sem kom í ljós 14 árum síðar að hafði aðeins verið leppur í viðskiptunum, þótt aðkoma þessara bærðra að því hafi reyndar ekki verið fullsönnuð, svo að því sé haldið til haga. Meðal kaupenda voru líka alls konar sjóðir sem enginn veit hverjir eiga og gætu allt eins verið leppar. Jafnframt voru starfsmenn söluaðila og aðilar tengdir þeim á meðal kaupenda, sem er kannski ekki alltaf ólöglegt en vekur samt upp spurningar um hvaða upplýsingar þeir gætu hafa fengið.
Ég hefði eiginlega varla getað skáldað þetta upp sjálf, svo ótrúleg var sú mynd sem blasti við. Hvað vitum við nema þessir aðilar hafi verið að kaupa sig inn í eigendahóp Íslandsbanka, sumir aftur ef við lítum á gamla og nýja bankann sem þann sama, með peningum sem þeim tókst að koma undan fyrir fall gamla bankans og geyma á erlendum leynireikningum? Komu þeir jafnvel með þá peninga aftur til Íslands í gegnum fjárfestingarleið Seðlabankans og fengu afslátt af þeim krónum sem þeir keyptu fyrir erlendan gjaldeyri?
Nú ætla ég ekki að fullyrða neitt um það en við vitum það bara alls ekki því að það hefur ekki verið rannsakað og grunsemdirnar sem óhjákvæmilega vakna eru vægast sagt óþægilegar, ekki síst núna þegar blikur eru aftur á lofti í efnahagslífi og fjármálakerfi landsins og mikil óvissa ríkir um afdrif venjulegs fólks sem glímir við síhækkandi vexti og verðbólgu. Stundum er spurt hvað við höfum lært af hruninu. Ég held því miður að það sem þó liggur fyrir um þessa sölu bendi til þess að sumir hafi bara alls ekkert lært af því. Við hin höfum hins vegar lært að ef minnsti vafi leikur á að eitthvað rangt sé haft við í tengslum við einkavæðingu ríkisbanka þá borgi sig ekki að treysta neinu fyrr en öllum steinum hefur verið velt við og öll tvímæli tekin af.
Vegna þeirra fjölmörgu spurninga sem er ósvarað um sölu á 22,5% af eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka í mars í fyrra, ekki síst um hvort lög hafi verið brotin eins og margt bendir til, er ég þeirrar skoðunar að það sé ekki aðeins viðeigandi að skipuð verði rannsóknarnefnd Alþingis til að fara ofan í alla sauma á málinu og skila af sér ítarlegri skýrslu heldur sé það beinlínis nauðsynlegt.
Ég vil í því sambandi minna á að það var ekki fyrr en 14 árum eftir einkavæðingu Búnaðarbankans og níu árum eftir að sá banki sem varð til úr honum fór í þrot sem leitt var í ljós að kaupin hefðu í raun verið leppur til að dylja hverjir voru raunverulegir kaupendur en svo hægt yrði að rannsaka það þurfti einmitt að skipa rannsóknarnefnd Alþingis.
Ég minni líka á að formenn þingflokka allra stjórnarflokkanna lýstu því yfir í fyrra að ef einhverjum spurningum yrði ósvarað eftir úttekt Ríkisendurskoðunar myndu þeir styðja að skipuð yrði sérstök rannsóknarnefnd til að fara nánar yfir málið. Ég skora nú á þá að standa við þau orð.
Ég get ekki látið hjá líða að minnast á hve margir fræðimenn afþökkuðu boð um að mæta fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að ræða þessa skýrslu. Það vekur manni ugg að innan fræðasamfélagsins virðist ríkja ótti gagnvart því að veita fræðilegt álit í pólitísku máli. Það hvað veldur er stærri spurning en svo að henni verði svarað hér en þetta er engu að síður mjög alvarlegt og kannski þörf á að við íhugum hvernig á þessu standi.
Að lokum vil ég þakka öðrum fulltrúum stjórnarandstöðunnar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrir góða samvinnu í þessu máli sem gat af sér ítarlegt og vandað nefndarálit minni hlutans sem ég styð heils hugar og vona að krafa okkar um skipun rannsóknarnefndar muni ná fram að ganga.