skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Frú forseti. Við ræðum hér um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Ég stend að áliti meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og vil því hér í þessari umræðu segja nokkur orð.
Í fyrsta lagi langar mig aðeins að tala um aðdraganda þessarar skýrslu því að það hefur verið gagnrýnt hér talsvert að það sé hæstv. fjármálaráðherra sjálfur sem hafi kallað eftir skýrslunni strax þegar gagnrýni á söluferlið á bankanum kom fram. Ég er mjög ánægð með að það hafi verið hæstv. ráðherra sjálfur sem kallaði eftir skýrslunni. Í því lagaumhverfi sem við erum með er gert ráð fyrir því að ráðherrar geti beðið Ríkisendurskoðun um að taka út atriði þar sem ríkisendurskoðandi hefur sjálfur mjög gott svigrúm um það hvernig hann afmarkar eða nálgast málið. Mér finnst því mikilvægt og það ýti undir það að sýna fram á að það hafi verið ríkur vilji hjá stjórnvöldum til þess að hér sé í alvöru allt uppi á borðum þegar við ræðum um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka hinn 22. mars árið 2022. Mér finnst þetta ekki á nokkurn hátt varpa rýrð á gæði skýrslunnar heldur einmitt undirstrika það að stjórnvöld vilji hafa hlutina uppi á borðum. Jafnframt var það fjármálaráðherra sjálfur sem kallaði eftir því að listi yfir kaupendur yrði gerður aðgengilegur. Mér finnst það aftur skipta máli vegna þess að ég vil að það ríki gagnsæi. Bankasýslan hafði ekki viljað birta þennan lista en hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra gerði það engu að síður enda taldi hann að leynd á slíku gengi í berhögg við það gagnsæi sem eigi að ríkja við sölu á eignarhlutum ríkisins.
Af hverju er ég að draga þetta fram hér í upphafi máls míns? Jú, það er vegna þess að ýmislegt kom í ljós við söluna á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka sem hefði mátt fara betur og ég ætla að koma betur að hér á eftir. Það er rakið í skýrslu Ríkisendurskoðunar og við fjöllum um í nefndaráliti meiri hlutans. Hins vegar hefur verið vilji til þess að það sé grafið ofan í það og það er það sem ríkisendurskoðandi hefur gert.
Það eru enn þá atriði sem snúa að fjármálaeftirliti Seðlabankans sem gætu leitt eitthvað í ljós. En það er í raun atriði sem eru utan þeirrar skýrslu sem við fjöllum um hér í dag. En mér finnst mikilvægt að það kemur fram í skýrslunni að þó svo að atriði hefðu mátt fara betur þá sé ekkert sem bendi til þess að lög hafi verið brotin í þessu söluferli. Auðvitað skiptir það máli, auðvitað skiptir það alveg gríðarlega miklu máli. En það er mikilvægt að læra af reynslunni og þess vegna er skýrsla Ríkisendurskoðunar mikilvæg, það skiptir máli þegar verið er að selja hlut ríkisins að vel sé staðið að málum.
Mig langar aðeins að fjalla um það sem snýr að kynningu fyrir þingnefndum. Það kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að að mati Ríkisendurskoðunar hefði upplýsingagjöf til þingsins ekki dregið upp nægilega skýra mynd af tilhögun söluferlisins og telur að hægt hefði verið að upplýsa þingið enn betur, sérstaklega vegna þess að þessu fyrirkomulagi, þ.e. tilboðsfyrirkomulagi, hafði aldrei áður verið beitt sem söluaðferð á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Það breytir því þó ekki að sú kynning sem þingnefndirnar fengu uppfylltu formleg skilyrði. Ég held hins vegar að eftir á að hyggja hefði verið æskilegt að til að mynda draga það betur fram að það væri möguleiki á að fjárfestar myndu fjárfesta í litlum hlut eins og raunin varð og að það væri í rauninni eitt af því sem þessi söluaðferð gæti falið í sér. Þá er það einnig þannig að sala með tilboðsfyrirkomulagi ber eðli málsins samkvæmt einkenni starfshátta sem tíðkast á fjármálamarkaði og það má alveg velta því fyrir sér eftir á að hyggja hvort það hafi verið besta leiðin til að selja ríkiseign. En á það er bent á á móti að slíkt hefur verið gert annars staðar þannig að það var ekkert verið að finna upp hjólið hér.
Það þarf nefnilega að ríkja traust þegar kemur að sölu á eignum ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Ég verð að segja að ég tel að það sé mikilvægt að traust ríki þegar kemur að sölu á eignarhlut ríkisins, ekki hvað síst í fjármálafyrirtækjum. Það hefur komið í ljós að hér hefði verið hægt að standa betur að málum. Það kemur einnig skýrt í ljós í skýrslu ríkisendurskoðanda að niðurstaðan úr sölunni hafi engu að síður verið hagfelld fyrir ríkið og að ekki hafi við rannsókn málsins komið upp neitt það sem benti til þess að lög hefðu verið brotin. Í mínum huga er stór munur á því að hafa ástæðu til að ætla að lög séu brotin og svo að það sé hægt að framkvæma eitthvað enn betur. Mér finnst það vera það sem skýrsla ríkisendurskoðanda hefur dregið fram. Þess vegna var rétt og mikilvægt að kalla eftir henni.
Hvað framhaldið varðar þá tel ég, og við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði höfum talað um það, að það þurfi að breyta fyrirkomulaginu við söluna á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum áður en haldið verði áfram með sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka því að það verður að ríkja traust um þá aðferð sem notuð er. Þrátt fyrir að ekkert bendir til þess að hér hafi lög verið brotin þá hefur þetta rýrt traustið vegna þess að það hefði verið hægt að standa betur að málum. Hérna held ég að við eigum að nota skýrslu Ríkisendurskoðunar til þess að læra af málinu en jafnframt að muna það að ríkisendurskoðandi er trúnaðarmaður Alþingis og á að benda okkur á það ef hann verður þess áskynja í verkum sínum að lög hafi verið brotin.