153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf.

784. mál
[17:42]
Horfa

Frsm. minni hluta (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Mig langar að vísa til orða hv. þingmanns þegar farið var af stað í þessa vegferð með því að óska eftir úttekt Ríkisendurskoðunar. Sú sem hér stendur var áfram um að óska ætti frekar eftir rannsóknarnefnd Alþingis. Þá sagði hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir, með leyfi forseta:

„Ég vil ítreka að það hefur ekkert verið fallið frá því að koma á fót sjálfstæðri rannsóknarnefnd. Við erum hins vegar sum hver hér að tala fyrir því að við teljum ríkisendurskoðanda, sem er sjálfstæður í sínum störfum, vera eðlilegan fyrsta stað til þess að hefja þessa vinnu.“

Síðan talar hv. þingmaður um að það skipti máli að fá einhverjar niðurstöður og umfjöllun um það sem gerðist hratt. Vissulega segir hv. þingmaður að leiðin til að skapa traust sé að allt sé uppi á borðum.

„Þess vegna skiptir máli, tel ég, að fara þessa leið. Sjálfstæð rannsóknarnefnd, sem ég held að sé einnig góð hugmynd, vinnur öðruvísi og mun taka lengri tíma í störfum sínum. En byrjum á hinu.“

Nú vil ég í fyrsta lagi spyrja hv. þingmann hvort hún líti enn þá svo á, eins og lesa mátti úr þessum orðum hennar, að í raun væri úttekt Ríkisendurskoðunar bara byrjun, hún myndi taka stuttan tíma, sem við getum svo deilt um hvort hafi tekist, og síðan gæti rannsóknarnefnd sem myndi taka miklu lengri tíma tekið við keflinu. Mig langar í því samhengi að benda á að rannsóknarnefnd sem var skipuð síðast var innan við ár að skila sínu verki um einkavæðingu Búnaðarbankans. Við hefðum líklega verið komin með niðurstöðurnar í fangið núna. En gott og vel. Telur hv. þingmaður enn þá tilefni til að skipa rannsóknarnefnd?