153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[17:44]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Já, við ræddum þessi mál áður en skýrsla ríkisendurskoðanda lá fyrir og þá vorum við auðvitað að ræða mál sem við eðli málsins samkvæmt vissum ekki hvernig myndu líta út þegar afurð ríkisendurskoðanda kæmi í ljós. Ég tel að sú skýrsla sem unnin var af ríkisendurskoðanda og tók jú nokkuð langan tíma í vinnslu sé gríðarlega yfirgripsmikil. Ég get nú kannski ekki sagt að ég hafi beinlínis vitað hvernig hún myndi líta út þegar við vorum í þessum byrjunarfasa að ræða málið. Ég tel hins vegar að í þessari yfirgripsmiklu skýrslu hafi spurningum verið svarað og bent á þau atriði sem betur mættu fara en þó þannig að hér hafi ríkisendurskoðandi ekki orðið þess áskynja að nein lög hafi verið brotin.