153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf.

784. mál
[17:46]
Horfa

Frsm. minni hluta (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil kannski vísa aftur í orð sem hv. þingmaður lét falla í sömu umræðu um fundarstjórn forseta þar sem við vorum að ræða nauðsyn rannsóknarnefndar. Þar sagði hv. þingmaður, með leyfi forseta:

„Mér finnst þetta eðlilegur og réttmætur upphafspunktur á rannsókn. Það getur svo alveg þýtt það að einnig verði í kjölfarið skipuð rannsóknarnefnd ef við teljum þær upplýsingar sem koma frá Ríkisendurskoðun á einhvern hátt ekki nægilega yfirgripsmiklar. En ég tel rétt að byrja á þessum stað, fá þessar upplýsingar frá þeirri stofnun sem gerir úttektir fyrir Alþingi og svo er hægt að gera meira í framhaldinu.“

En gott og vel. Hv. þingmaður sagði í ræðu sinni hérna áðan að það komi fram í skýrslunni að ekkert bendi til þess að lög hafi verið brotin. Ég vil biðja hv. þingmann um að benda mér á hvar þetta stendur í þessari blessuðu skýrslu vegna þess að mig rekur ekki minni til þess að það standi á nokkrum einasta stað í skýrslunni að ekkert bendi til þess að lög hafi verið brotin. Það einfaldlega kemur ekki fram, virðulegi forseti. Það gerir það ekki. Og vegna þess að hv. þingmaður var að tala um að henni finnist í raun ekki þurfa að afla frekari gagna og að hún líti svo á að skýrslan sýni fram á að engin lög hafi verið brotin þá vil ég vísa í það sem fram kemur í skýrslunni á bls. 11:

„Það er niðurstaða Ríkisendurskoðunar að Bankasýslan hafi í aðdraganda söluferlisins ekki sinnt með fullnægjandi hætti hlutverki sínu skv. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 88/2009 um stofnunina að tryggja gagnsæi í allri ákvarðanatöku varðandi þátttöku ríkisins í fjármálastarfsemi og tryggja virka upplýsingamiðlun til almennings. Stofnuninni tókst ekki að miðla upplýsingum um fyrirhugaða sölu með skýrum og árangursríkum hætti. Sama má segja um upplýsingagjöf fjármála- og efnahagsráðuneytis við birtingu greinargerðar ráðherra …“

Þetta er eitt af fjölmörgum dæmum, hv. þingmaður, þar sem ríkisendurskoðandi (Forseti hringir.) ýjar alla vega mjög sterklega að því að lög hafi verið brotin en endurtekur að það sé ekki í hans verkahring að álykta um lögfræðileg úrlausnarefni. (Forseti hringir.) Þarf ekki að fá einhvern í verkið sem treystir sér til að álykta um lögfræðileg úrlausnarefni sem eru hérna til skoðunar?

(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)