153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[17:49]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það er hlutverk ríkisendurskoðanda að benda á það ef lög hafa verið brotin. Hann ýjar ekki að slíku. Það er hlutverk hans að benda á ef svo er. Á það er ekki bent í skýrslunni. Hins vegar kom fram til að mynda þegar ríkisendurskoðandi var spurður að þessu, það er dregið sérstaklega fram, að það hefði ekki komið neitt fram um það, hann hafi ekki orðið þess áskynja að lög hafi verið brotin. Ég notaði talsverðan tíma af ræðu minni í að fjalla um það sem betur hefði mátt fara í kynningu Bankasýslunnar, m.a. fyrir þingnefndum. Það kemur fram að hún hafi uppfyllt formskilyrði, nú man ég ekki nákvæmlega orðalagið, hvorki í skýrslunni né í nefndaráliti meiri hlutans, að sú kynning hafi uppfyllt þau skilyrði sem lögum samkvæmt eigi að vera. Það þýðir hins vegar ekki, líkt og ég rakti í ræðu minni, að það hefði ekki mátt ræða þetta betur og kafa dýpra ofan í þetta vegna þess að það kom í ljós að þingmenn virtust halda, þar með talið ég, skal ég bara fúslega viðurkenna, að hlutunum væri öðruvísi fyrir komið, til að mynda þegar kæmi að fjárfestum og þeim stærðum af hlutum sem þeir gætu verið að kaupa. Þetta er að hluta til eitthvað sem ég sem þingmaður hefði mátt kanna betur. En ég held að þetta sé líka eitthvað sem almennt séð hefði mátt betur fara í kynningunni fyrir nefndinni. (Forseti hringir.) Það er ekki það sama og að segja að lög hafi á einhvern hátt verið brotin.