skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Virðulegi forseti. Skýrsla Ríkisendurskoðunar er um margt athyglisverð og þar kemur fram mjög hörð gagnrýni á það hvernig staðið var að þessu söluferli. Ég verð samt að viðurkenna að mér finnst skýrslan að sumu leyti vera eins og einhvers konar hugleiðing eða pistill frekar en skjal þar sem er verið að slá miklu föstu um það hvað gerðist og að sumu leyti finnst mér skýrslan skilja frekar eftir fleiri spurningar en svör.
Ég skil hins vegar meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þannig að málið sé í grundvallaratriðum að þeirra mati fullupplýst, þannig að ég ætla bara aftur, eins og ég gerði í andsvari áðan, að fá að bera undir hv. þingmann atriði sem ég veit ekki svörin við en stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur vonandi fengið einhver svör við. Það kemur fram á bls. 60 í skýrslunni að samkvæmt fjármálaráðuneytinu hafi fundargestir á hverjum fundi eftir að söluferlið hófst fengið kynningu erlendra fjármálaráðgjafa Bankasýslunnar á nýjum erlendum tilboðsgjöfum og þeim sem höfðu dregið sig til baka. Upplýsingar af stöðu mála hafi verið sýndar á umræddum fundum, t.d. tafla sem sýndi eftirspurnarmagn miðað við mismunandi verð. Ekki fengust fullnægjandi skýringar hjá Bankasýslunni eða Íslandsbanka á því hvaða upplýsingar ráðuneytið væri að vísa til. Það að eftirspurnarmagn miðað við mismunandi verð hafi verið dregið upp á stafrænum fundum er í andstöðu við svör þeirra um að slíkar myndir hafi ekki verið útbúnar á fundinum sem haldinn var í Íslandsbanka við ákvörðun um leiðbeinandi lokaverð.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það hafi fengist botn í þetta fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vegna þess að þetta er t.d. ein af þeim ótal spurningum (Forseti hringir.) sem er ekki svarað í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þarna voru einfaldlega mismunandi frásagnir, það voru gjörólík svör frá Bankasýslunni annars vegar og (Forseti hringir.) frá ráðuneytinu hins vegar. Hver var niðurstaðan hér?