skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Virðulegi forseti. Ég geri ráð fyrir því þegar meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar leggur fram plagg og færir rök fyrir því að mál sé að mestu leyti ef ekki öllu leyti fullupplýst að þá hafi þau rýnt svolítið í skýrslu Ríkisendurskoðunar og fengið svör við því sem Ríkisendurskoðun sjálf fékk ekki svör við. Ég ætla ekki að lesa þetta upp aftur. Þetta stendur á bls. 60 í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Ég nefni þetta bara sem eitt dæmi af mörgum um það að frásögn eða svör Bankasýslunnar og svör ráðuneytisins stangist á. Hv. þingmaður hefur sjálfur sagt að þessi úttektarvinna Ríkisendurskoðunar sé fyrsta skrefið og ef tilefni sé til að skoða hlutina frekar þá muni hún styðja það. Ég nefndi hér eitt dæmi af mörgum um atriði sem engin fullnægjandi svör hafa fengist við, hvorki í skýrslu Ríkisendurskoðunar né að því er virðist við meðferð þessa máls hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, svo ég spyr aftur. Þetta stendur á bls. 60 og ég er að spyrja hvort nefndin hafi fengið skýringar á þessu misræmi og hvert hið sanna er, hvort ráðuneytið sé að fara með rétt mál eða Bankasýslan og hvort nefndin hafi í alvörunni ekki fengið úr þessu skorið. Þetta er á bls. 60 og þetta varðar fundi eftir að söluferlið hófst. Þetta er þarna um kvöldið.