Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[17:56]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla að reyna eftir bestu getu að svara hv. þingmanni. Ég veit samt ekki enn þá alveg nákvæmlega hvað það er sem hv. þingmaður er að spyrja um og vil bara ítreka það sem ég sagði í ræðu minni hérna áðan að það kom skýrt fram í máli ríkisendurskoðanda að það hafi ekki verið neitt sem hann varð áskynja um að stangaðist á við lög. Ég get ekki annað en sagt að það er fjallað um ýmis atriði í skýrslunni og það er reifun á ýmsu og það er bara eðlilegt. En það að telja að þar með hafi lagaáskilnaður ekki verið í lagi … (Gripið fram í.)— nei, þá verð ég að standa við það að ég skil bara spurningu hv. þingmanns ekki betur en þetta. (JPJ: Þið vitið enn þá ekkert hvað gerðist.)