153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[18:15]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur kærlega fyrir þetta. Að við séum að fara hér fjálglega með það hvaða heimildir rannsóknarnefnd hafi umfram það sem ríkisendurskoðandi hafi — við erum auðvitað með sérstakt úrræði til að rannsaka hluti ef þannig stendur á, sem er rannsóknarnefnd Alþingis. Hún getur farið víðar yfir sviðið. Hún getur tiltekið og skoðað hluti t.d. hjá einkaaðilum sem ríkisendurskoðandi gerir ekki. Ég held að það sé eiginlega einfaldast að svara þessu þannig að ef það væri ekki mikill munur þarna á og það skipti í sjálfu sér ekki miklu máli hvort það hefði verið rannsóknarnefnd Alþingis t.d. sem fór yfir bankahrunið eða ríkisendurskoðandi, þá hefðum við auðvitað bara falið ríkisendurskoðanda að skoða það. Það er auðvitað þannig að það geta komið upp ákveðnar aðstæður og það er reyndar tiltekið í forminu að það þurfi að vera búið að reyna og skoða aðrar leiðir á undan til að rannsóknarnefndin geti komið saman og til starfa. Ég ætla algerlega að hafna því að það sé í sjálfu sér ekki mikill munur á því hvað slík nefnd getur gert eða hvaða heimildir Ríkisendurskoðun hefur, fyrir utan það að við vorum að tiltaka það hér í ræðum og í nefndaráliti að Ríkisendurskoðun sjálf er í skýrslunni ítrekað að benda á eigin takmarkanir með nokkuð skýrum og greinargóðum hætti.

Varðandi það sem snýr að þýska bankanum og Ríkisendurskoðun og rannsóknarnefnd um einkavæðingu Búnaðarbankans þá liggur auðvitað fyrir að ríkisendurskoðandi fór tvisvar yfir málið en fann ekkert athugavert. En það gerðist hins vegar þannig að við fengum miklu fyllri og gleggri mynd af öllu einkavæðingarferlinu þegar rannsóknarnefndin kom fram og skilaði sinni niðurstöðu. Það er algjörlega óumdeilt og það varð t.d. mikil umræða um það á sínum tíma þegar þetta lá allt fyrir og því velt upp hvers vegna Ríkisendurskoðun hefði komist að þeirri niðurstöðu sem hún komst að áður og hvort hana skorti þá ekki yfir höfuð heimildir. Það er algjörlega óumdeilt (Forseti hringir.) að rannsóknarnefnd á vegum Alþingis getur farið víðar yfir sviðið og beitt sér með öðrum hætti (Forseti hringir.) í gagnaöflun heldur en ríkisendurskoðandi getur gert.