Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[18:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Hildur Sverrisdóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir þetta. Auðvitað átta ég mig á því að rannsóknarnefnd er fyllra úrræði, eins og ég held hann hafi orðað það og er ágætlega orðað, ég er ekkert að gera lítið úr því. Það breytir því ekki að í því máli sem er til skoðunar hér er ríkisendurskoðandi að skoða eitt afmarkað atriði þar sem hann hefur lagalegan rétt til allra upplýsinga, allra gagna. Ef það er eitthvað sem er á einhverju gráu svæði sem heyrir ekki undir Bankasýsluna eða fjármálaráðuneytið eða ráðherra eða hvað það svo sem er þá er annar varnagli í lögunum þar sem hann getur leitað upplýsinga og hann getur leitað atbeina lögreglu ef aðilar vilja ekki veita þessar upplýsingar. Minn punktur er að heimildirnar til rannsóknar eru víðtækari heldur en hefur verið haldið fram í þessari umræðu. Það breytir því heldur ekki að hann hefur lagalega skyldu til þess að skoða lögbrot eins og þau blasa við. Auðvitað er enginn að segja að Ríkisendurskoðun sé dómstóll í þeirri eiginlegu merkingu að skera úr um lögfræðileg álitamál eins og stundum hefur verið haldið fram, eins og þá hafi hann bara enga skoðun á lögum. Auðvitað er það ekki svo. Það er mjög skýrt að hann ber þá ábyrgð samkvæmt lögum að hafa skoðun á lögbrotum ef þau koma nálægt eða hafa að gera með þá úttekt sem hann er að gera. Fyrir utan að það segir sig svolítið sjálft þá hefur hann sagt sjálfur að hann skoðaði þessi atriði, hann sá ekki tilefni til þess að fara dýpra í þau, þau er þess vegna ekki að finna í skýrslunni. Við erum öll sammála um að það er óheppilegt og þess vegna erum við svona oft að ræða þetta hér. En það atriði er bara þannig að ég sé ekkert í þessu máli sem kallar á einhverja dýpri rannsókn á málinu og að það sé eitthvað sem liggi ekki fyrir í því. Ég er ósammála því (Gripið fram í.) og vil bara aftur fá að segja að það er ekki rétt að það hafi verið rannsóknarheimildin sem gerði það að verkum að við komumst til botns í Búnaðarbankamálinu. Það er bara ekki rétt.