Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[18:20]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir þetta og já, sumpart er þetta auðvitað þannig að við verðum bara að leyfa okkur að vera ósammála um það hvort það eigi að ganga lengra með málið eða ekki. En mér fannst reyndar hv. þingmaður svara því ágætlega fyrir mig í raun og veru í svarinu um það að það er bara of mörgum spurningum ósvarað til þess að við getum sett punkt hér. Það kemur t.d. ítarlega fram í nefndaráliti meiri hlutans að það sé of mikið um almennar vangaveltur — og nú er ég að fara efnislega með, ekki orðrétt — en lítið gert af því að taka af skarið og segja til um hvort það hafi verið farið á svig við lög eða hvort þessi lög eigi við eða ekki. Það er einmitt nákvæmlega það sem við erum að tala um. Þegar er verið að selja ríkiseigur fyrir tugi milljarða þá mega ekki vera einhver grá svæði og allra síst þegar við ætlum síðan að fara að reyna að selja meira af þessum sömu ríkiseigum. Þetta er ekki þannig að ferill þeirra flokka sem hér hafa verið við völd meira og minna í áratugi í því að selja ríkiseigur sé það góður og jákvæður að við getum leyft okkur það sleifarlag að láta fullt af spurningum vera ósvarað. Það gengur ekki upp. Meiri hluti nefndarinnar og minni hluti nefndarinnar eru þó a.m.k. sammála um að það er mjög mikið af óskýrum gráum svæðum í þessari skýrslu. Í svona veigamiklu máli þar sem milljarðatugir eru undir, þar sem ekki var kafað djúpt ofan í það til að mynda hvað varðar hæfi ráðherrans og allt annað sem lýtur að stjórnsýslulögum, þá er bara ekki boðlegt að skilja við hlutina þannig. Um þetta verðum við bara að vera ósammála. Mér finnst allt þetta algerlega kristalla rökin fyrir því að við setjum ekki punkt hér heldur höldum áfram að rannsaka málið með rannsóknarnefnd sem hefur, hvað sem hv. þingmaður segir, mun ríkari úrræði til að leiða svona mál til lykta en Ríkisendurskoðun.