Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[18:24]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir þessar spurningar. Önnur snýr náttúrlega beint að efni málsins en í hinni erum við kannski farin að tala svolítið um pólitíska hugmyndafræði sem er gaman að tala um líka. Af hverju ættum við að halda áfram eftir þetta klúður? Þetta er bara mjög góð spurning. Ég vil halda áfram að selja í bankakerfinu vegna þess að ég trúi því og treysti að það sé betra að ríkið haldi ekki á þessum eignarhlutum. Þar má auðvitað vísa í áratuga langa sögu eignarhalds opinberra aðila á bönkum. Það fyrirkomulag sem var hér á árum áður reyndist auðvitað ekki vel fyrir utan að þessir fjármunir sem liggja í bankakerfinu núna myndu nýtast ríkissjóði ákaflega vel, ekki síst um þessar mundir. En já, þetta er áleitin spurning. Af hverju ættum við að gera þetta núna? Er þessari ríkisstjórn treystandi til þess að selja? Er þessum aðilum treystandi til að halda áfram? Mér finnst erfitt að svara þessari spurningu, því miður, þrátt fyrir að hugmyndafræðin sé afskaplega skýr um það hvað ég vilji gera. Þess vegna hef ég lagt svo mikla áherslu á það í mínu tali að við reynum að eyða vantraustinu og komast raunverulega til botns í því sem gerðist þarna með ítarlegri og fyllri hætti heldur en gert er í þessari skýrslu. Það var náttúrlega viðbragð við þessu klúðri beint, gott ef það var ekki einhvern veginn mjatlað um páska og svo var tilkynnt strax eftir páska að Bankasýslan yrði lögð niður. Þetta var bara fréttatilkynning: Við ætlum að að leggja niður stofnun. Það gekk illa að selja banka, við ætlum að leggja niður stofnunina. Þarna er auðvitað verið að færa ábyrgðina eitthvert annað og ýta svolítið undir það í verki. Síðan þarf að taka við eitthvað annað fyrirkomulag. Ég verð kannski að segja það í lokin, til að svara fyrri spurningunni: Auðvitað getur það fyrirkomulag sem ákveðið verður að viðhafa við áframhaldandi sölu haft svolítið mikið um það að segja hvort maður beri traust til þess. Það þarf ekki allt að vera mengað af þessu klúðri. (Forseti hringir.) Almennt útboð til almennings er t.d. eitthvað sem ég gæti vel ímyndað mér að gæti hentað vel.