skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Virðulegi forseti. Við ræðum í dag skýrslu Ríkisendurskoðunar á sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka sem fram fór þann 22. mars 2022. Framkvæmdin var harðlega gagnrýnd hér í þingsal og fór svo að ráðherra óskað eftir því við ríkisendurskoðanda að framkvæma stjórnsýsluúttekt á sölunni. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fékk í hendurnar skýrsluna 14. nóvember 2022 og hefur haft málið til ítarlegrar skoðunar, boðað til sín fjölmarga gesti og fengið skriflegar umsagnir um málið frá ýmsum aðilum. Vert er að nefna að enn er óupplýst hver lak skýrslunni til fjölmiðla degi fyrir kynningu fyrir nefndinni, en við höfum haft þann háttinn á að fyrst fái nefndin kynningu áður en skýrslan er gerð opinber. Ef niðurstaða fæst ekki í það mál, sem ég efa nú reyndar að muni gerast vegna þess tíma sem liðið hefur, þá getur það og hefur haft áhrif á traust í okkar garð. Við verðum að geta staðið undir því trausti sem okkur er sýnt hér er varða trúnaðargögn þótt um trúnað í skamman tíma sé að ræða.
Mat meiri hlutans er að niðurstaða sölunnar hafi verið hagfelld ríkissjóði. Um fjárhagslegar niðurstöður mun ég fjalla aðeins síðar en tel mikilvægt að fara hér yfir þær ábendingar ríkisendurskoðanda er lúta að ágöllum á framkvæmd sölunnar. Ríkisendurskoðandi telur ýmislegt upp sem betur hefði mátt fara við undirbúning og framkvæmd en mikilvægt er að nefna hér og ítreka að ekkert hefur komið fram sem áhrif hafa á niðurstöðu sölunnar og ekkert hefur gefið til kynna að lög hafi verið brotin af hálfu ráðherra eða Bankasýslunnar um framkvæmdina. Minni hlutinn hefur gert því skóna að fyrst ekki er ítarlega farið yfir hvort framkvæmdin hafi verið í samræmi við lög þá hljóti að vera eitthvað sem bendi til þess að svo hafi ekki verið. Þessu hefur ríkisendurskoðandi sjálfur ítrekað vísað á bug í viðtölum og jafnvel á opnum fundi fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, enda ber honum að vekja athygli á því verði hann áskynja um brot gegn lögum.
Ég verð þá að segja, og hefur komið fram í umræðum um málið, að heppilegt hefði verið ef tekið hefði verið á þessu með mun skýrari hætti í skýrslunni þannig að það væri engum vafa undirorpið að ráðherra hefði ekki brotið lög við söluna. En orð ríkisendurskoðanda sjálfs fyrir nefndinni verða ekki dregin í efa. Hann varð þess aldrei áskynja að um lögbrot gæti verið að ræða við sína rannsókn og þar af leiðandi er ekkert sem bendir til þess að lög hafi verið brotin af hálfu ráðherra og Bankasýslunnar.
Það voru vissulega mikil vonbrigði að við lok athugunar Fjármálaeftirlitsins kom í ljós að söluaðili hafi brotið lög við framkvæmd sölunnar. Málið er í ferli, lögum og reglum samkvæmt, og er mikilvægt að það verði upplýst er því lýkur. Eins gerum við í meiri hlutanum athugasemdir við aðkomu Íslandsbanka að sölunni á sér sjálfum enda er það fyrirkomulag ekki til þess fallið að vekja traust almennings á sölunni og er mikilvægt að það sé haft í huga þegar framtíðarfyrirkomulag er mótað.
Nefnd er sérstaklega upplýsingagjöf og gagnsæi í ferlinu. Fjallað er ítarlegar um þetta í nefndaráliti meiri hlutans sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir gerði vel grein fyrir. Um er að ræða söluaðferð sem ekki hefur verið notuð hérlendis áður og því hefði mátt gera mun betur varðandi það er snýr að upplýsingagjöf til almennings. Ríkisendurskoðun taldi ráðuneytið og Bankasýslu ríkisins hafa átt að skipuleggja betur upplýsingagjöf þar sem um áður óþekkta aðferð var að ræða, til að fyrirbyggja þann jarðveg sem skapaðist fyrir vantraust og misskilning á aðferðinni og framkvæmd hennar.
Fyrir nefndinni kom fram að sala með tilboðsfyrirkomulagi er ekki aðferð sem auðvelt er og/eða í raun hægt að niðurnjörva og einkennir það einna helst hversu hratt allt gengur fyrir sig og reynir í ferlinu á faglegt og huglægt mat margra aðila sem að sölunni koma. Því var gjarnan velt upp að aðferðin hentaði illa íslenskum markaði vegna smæðar hans, en þó höfum við fjölmörg dæmi í Evrópu þar sem sala með tilboðsfyrirkomulagi er vel þekkt og notuð af ríkisstjórnum við sölu á eignarhlutum ríkisins. En þó stendur eftir að fjárhagsleg niðurstaða sölunnar á 22,5% hlut íslenska ríkisins í Íslandsbanka er ein sú best lukkaða á undanförnum árum í Evrópu.
Kveðið er skýrt á um hlutverk ríkisendurskoðanda í lögum, en þar segir, með leyfi forseta:
„Hlutverk ríkisendurskoðanda er að hafa í umboði Alþingis eftirlit með fjárreiðum ríkisins, stofnana þess og ríkisfyrirtækja á þann hátt sem nánar greinir í lögum þessum. Hann skal í störfum sínum hafa eftirlit með tekjum ríkisins og að fjárheimildir og hvers konar verðmæti séu nýtt og þeim ráðstafað á hagkvæman og réttmætan hátt og í samræmi við forsendur og ákvarðanir Alþingis.“
Því voru það mér talsverð vonbrigði að meginpunktur skýrslunnar var ekki fjárhagsleg niðurstaða sölunnar. Í ljósi hins skýra hlutverks ríkisendurskoðanda var lítið sem ekkert fjallað um fjárhagslega niðurstöðu sölunnar fyrir ríkissjóð en þó segir í helstu niðurstöðum skýrslunnar, með leyfi forseta:
„Þrátt fyrir ýmsa annmarka á söluferlinu dregur Ríkisendurskoðun ekki í efa að fjárhagsleg niðurstaða söluferlis á hlut ríkissjóðs í Íslandsbanka þann 22. mars 2022 hafi verið ríkissjóði almennt hagfelld. Það á einnig við um þróun á gengi bréfa í bankanum á eftirmarkaði í kjölfar sölunnar.“
Þeir sérfræðingar sem nefndin ræddi við við vinnslu málsins voru á því að lykilatriði hafi verið að þróun á gengi bréfa í bankanum á eftirmarkaði hafi verið alger forsenda þess hve farsæl salan var fyrir ríkissjóð. Því hafi skipt gríðarlega miklu máli hvernig lokaverð var ákveðið til að fá ekki þá útkomu að gengi bréfanna hríðfélli á eftirmarkaði, því að slíkt hefði vissulega haft mjög neikvæð áhrif á eftirstandandi hlut ríkisins í bankanum.
Öll umræða um mögulegt hæsta verð hefur verið á villigötum og framsetning í skýrslunni um hver niðurstaða sölunnar hefði verið ef fengist hefðu 122 kr. á hlutinn er í raun óboðleg í ljósi þeirra skýringa sem við í nefndinni höfum fengið um ákvörðun á verðinu og þær forsendur sem að baki henni lágu. Það hefði aldrei verið raunhæft að selja hlut á 122 kr., sem var gengi bréfanna á markaði þann dag sem sala fór fram, til að ná öllum markmiðum sölunnar sem getið var einmitt um í greinargerð ráðherra um söluna og án þess að fá þessi jákvæðu áhrif á gengi bréfanna í bankanum á eftirmarkaði. Mikið hefur í þessu samhengi verið rætt um afslátt, eða frávik eins og þetta er kallað, en við nánari skoðun verður þeim fullyrðingum og sleggjudómum um að mikill eða óeðlilegur afsláttur hafi verið veittur algjörlega vísað á bug. Þá hefur verið vísað til þess sérstaklega að víða í Evrópu hefur frávikið hvergi verið jafn lágt og hérlendis. Í öllum samanburði hefur salan reynst gríðarlega farsæl hérlendis, sérstaklega hvað varðar magnið sem selt var og verð fyrir hlutinn.
Tónninn sem ríkisendurskoðanda er sendur í áliti minni hlutans er sá að hann hafi ekki verið sjálfstæður í störfum sínum. Þá er vísað til þess að fjármálaráðherra hafi sjálfur óskað eftir skýrslunni og þannig sé sjálfstæði ríkisendurskoðanda með einhverju móti teflt í tvísýnu. Þessu verður að vísa algjörlega á bug enda réði ríkisendurskoðandi því sjálfur hvort hann tæki við þessari beiðni ráðherrans og svo afmarkaði Ríkisendurskoðun sjálfstætt skoðunina og þær rannsóknarspurningar sem lagðar voru fram í skýrslunni. Það er kýrskýrt í lögum um Ríkisendurskoðun og ómaklegt að hér sé verið að vega að þessari grunnforsendu um sjálfstæði í störfum ríkisendurskoðanda. Ef minni hlutinn teldi þetta fyrirkomulag að einhverju leyti óeðlilegt hefði maður heyrt þennan kór í hvert sinn sem ráðherrar óska eftir slíkum skýrslum frá ríkisendurskoðanda og úttektum sem nú eru um 14 talsins frá árinu 2010, en ekki bara þegar pólitískt upphlaup er undir.
Núverandi fyrirkomulag utan um sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum er ekki eins og best var á kosið. Fjármálaráðherra hefur áður komið með tillögur til breytinga á því fyrirkomulagi sem við búum við í dag. Ríkisstjórnin hefur tilkynnt að breytingar séu í farvatninu: Bankasýsla ríkisins verði lögð niður og annað fyrirkomulag verði sett á laggirnar utan um eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Það er brýnt að nýtt fyrirkomulag verði kynnt hér sem fyrst svo við á Alþingi getum rætt málið og unnið þannig að traust á fyrirkomulag verði í samkomulaginu. Þá verður sérstaklega kveðið á um ábyrgð og ábyrgðarmörk, því að óskýrar reglur hvað það varðar kalla á rugling, mistúlkun og vantraust á ferlinu. Þó tel ég það einna helst mikilvægt að við komum á framtíðarfyrirkomulagi því að brýnt er fyrir ríkissjóð að geta haldið áfram að losa um eignarhluti sína í bönkunum. Framtíðarfyrirkomulagið verður að byggja á trausti og það er okkar hlutverk hér að tryggja að svo verði.