skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Forseti. Mér finnst áhugavert í máli hv. þingmanns að það sé vakin athygli á þeim hagsmunaárekstri sem felst í ferlinu, að Íslandsbanki hafi verið þarna á meðal í söluferlinu, en á sama tíma virðist meiri hlutinn ekki hafa neinar áhyggjur af hagsmunaárekstri ráðherra sjálfs varðandi sölu á hlut til föður síns. Ég sé að þingmenn ranghvolfa augunum út af þessari spurningu. En þetta er eitthvað sem við ættum augljóslega að hafa áhyggjur af og svara á mjög skilmerkilegan hátt. Það að ráðherra selji föður sínum hlut í bankanum er ekki vandamál. Af hverju er það ekki vandamál? Því er hvergi svarað, hvergi í áliti meiri hlutans, hvergi í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Hvergi er stafkrókur um að þetta sé bara í fínasta lagi. Mér finnst undarlegt að hv. þingmaður segi að aðkoma Íslandsbanka að þessari sölu sé ámælisverð en ekki það að ráðherra selji föður sínum hlut í banka. Hv. þingmaður segir að engin lög hafi verið brotin en talar síðan í næsta orði um að það sé óheppilegt að það sé verið að greiða stjórnvaldssekt … (Gripið fram í.) — Já, já, en það er lögbrot í ferlinu. Aðrir þingmenn hafa einnig talað um það hérna að engin lög hafi verið brotin, hamrað á því aftur og aftur. En Íslandsbanki gerir ráð fyrir því að greiða stjórnvaldssekt. Það er líka vel fjallað um það í málinu að Ríkisendurskoðun segist ekki taka á lögfræðilegum álitaefnum. Er þarna ákveðin tvísaga í gangi? Já, beinlínis eitthvað sem lítur út eins og lögbrot dettur ekki í fangið á honum til að segja af eða á. (Forseti hringir.) En hann virðist heldur ekki vera að leita neitt sérstaklega eftir því. Þetta er vandinn sem ég á við að etja í málflutningi meiri hlutans.