skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir ræðuna og það sem fram hefur komið. Það liggur alveg í hlutarins eðli og liggur fyrir hér í þessum þingsal að við erum ekki sammála um þetta allt saman en getum svo sannarlega skipst á skoðunum um þetta. Mig langaði að nefna í þessu samhengi af því að það er verið að tala um að þetta hafi verið svo vel heppnuð sala: Af hverju þurfti að leggja niður heila stofnun eftir að vankantarnir allir komu í ljós? Af hverju var það viðbragð ríkisstjórnarinnar að leggja niður heila stofnun einmitt vegna þess að svo illa tókst til? Af hverju þurfti yfir höfuð að kalla til Ríkisendurskoðun til að fara yfir málið ef þetta var allt svona vel lukkað? Það liggur auðvitað alveg fyrir og liggur svo sem líka fyrir bara í beinum orðum ráðherra ríkisstjórnarinnar að þessi sala var auðvitað klúður. Það var ekki staðið nægilega vel að málum. En gott og vel.
Það sem mig langaði kannski til að taka upp úr ræðu hv. þingmanns er tvennt. Það er annars vegar að salan hafi verið hagfelld fyrir ríkissjóð. Nú ætla ég í sjálfu sér ekkert að fara í eitthvert dómarasæti um það hvort það hafi átt að selja á 117 eða 118 eða 19. Það er verið að færa einhver rök fyrir því í skýrslunni að mögulega hefði verið hægt að fá hærra verð, gott og vel. En þegar við tölum um að eitthvað sé hagfellt fyrir ríkissjóð þá hljótum við að horfa til fleiri þátta en bara þess verðs sem fékkst á þessum degi. Er það hagfellt fyrir ríkissjóð að geta ekki selt eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka? Nei, það er stórskaðlegt. Það er bara þannig að það eru 70–80 milljarða gat í fjárlögunum ef okkur tekst ekki að selja í framhaldinu og það er auðvitað ekki traust til að halda því áfram. Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort þessir hlutir skipti ekki máli líka þegar við erum að velta því fyrir okkur hvort salan sé hagfelld fyrir ríkissjóð.
Hitt er síðan annað þegar við tölum um afsláttinn en það sem mér fannst ömurlegast við þennan afslátt var að einstaklingar sem keyptu fyrir 1 milljón, 3 milljónir, 4 milljónir, 5 milljónir (Forseti hringir.) fengu afslátt, rétt eins og þeir sem keyptu fyrir 50 eða 100 milljónir. Er það réttlátt?