Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[18:47]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir andsvarið og þessar spurningar allar sem ég vonandi næ ég að komast yfir á þeim tveimur mínútum sem ég hef til að svara. Hvað varðar Bankasýsluna og af hverju það er tekin ákvörðun um að leggja hana niður þá kemur það fram í áliti meiri hlutans að það er margt í lögunum og margt sem hefur komið í ljós við framkvæmdina og þessa umræðu sem hefur átt sér stað og auðvitað alla þessa fundi sem við höfum átt í nefndinni að fyrirkomulagið þarf að verða betra og fastmótaðra og skýrara. Það er nákvæmlega það sem ég tiltók sjálf í ræðu, það þarf að kveða skýrar á um ábyrgð og ábyrgðarmörk í lögunum til þess að við sköpum traust á áframhaldandi sölu. Þetta tengist svo sem líka seinni spurningunni sem er: Hvernig gat þessi sala verið hagfelld þegar umræðan og framkvæmdin virðist vera annmörkum háð, eins og kemur fram í skýrslunni? Þá auðvitað þurfum við að læra af því sem gerðist. Við þurfum að taka það veganesti með inn í þá umræðu sem við förum í þegar við förum að tala um framtíðarfyrirkomulag og utanumhald um eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum og hvernig við viljum hafa þetta fyrirkomulag áfram, byggja þannig upp traustið gagnvart þessu ferli. Það er auðvitað mjög mikilvægt að við gerum það og, eins og ég sagði, að við förum í það sem fyrst svo við getum haldið áfram þessu ferli. Þetta skiptir máli fyrir ríkissjóð og traustið skiptir máli. Það er enginn að reyna að víkja sér undan því eða segja að það skipti ekki máli í þessu ferli. Meiri hlutinn hefur líka sýnt viðleitni til að læra af þessu og vilja gera betur og það er þess vegna sem verið er að ráðast í breytingar og á að fara í þær breytingar sem við vonandi förum að ræða bráðlega.