skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir skýr svör. Mér finnst áhugavert að lesa álit meiri hlutans vegna þess að mér finnst þetta álit meiri hlutans staðfesta það að þessi sala í mjög veigamiklum atriðum gekk ekki vel og skildi eftir sviðna jörð að ákveðnu leyti sem erfitt er að rækta upp á ný til að skapa þetta traust sem hér er talað um. Í annan stað þá finnst mér álit meiri hlutans líka svolítið senda þau sterku skilaboð út í samfélagið að það sé ótrúlega mörgum spurningum enn þá ósvarað sem er ekki boðlegt þegar 50 milljarða eign er undir, að ekki sé talað um það sem á eftir að koma hvað varðar frekara söluferli.
Mig langaði líka að árétta fyrri spurningu mína um þetta með afsláttinn, hvort hv. þingmanni finnist eðlilegt að þeir sem kaupa fyrir 200 milljónir fái afslátt en þeir sem kaupa fyrir 1 milljón, 3 milljónir, 4, 5, eitthvað sem ekkert okkar sá fyrir held ég að ég geti fullyrt, fái líka afslátt. Þetta finnst mér ótrúlega ranglátt og skilja eftir stórar spurningar sem þarf að svara. Síðan kannski líka einhverjar smá hugleiðingar um það frá hv. þingmanni, af því að ég held að við deilum þeirri skoðun að vera ekkert æðislega spennt fyrir því að ríkið sé mikill leikandi á fjármálamarkaði, hvort þingmaðurinn sé hreinlega bjartsýnn á, miðað við þá stöðu sem við erum í núna í dag, að það verði farið í frekari sölu á Íslandsbanka á þessu ári eins og gert er ráð fyrir í fjárlögum. Ég er nefnilega því miður með ákveðnar efasemdir um að það verði hægt.