Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[18:52]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Ég ætla bara að fá að vera hjartanlega ósammála því að í áliti meiri hlutans komi einhvers staðar fram að einhverjum spurningum sé enn ósvarað. Það kemur hvergi fram í áliti meiri hlutans að einhverjum spurningum sé ósvarað. Hins vegar er það mat okkar að ýmsir þættir hefðu mátt koma skýrar fram í skýrslunni, sérstaklega hvað varðar lögin, og spyrja má hvort það sem ríkisendurskoðandi hefur sagt í viðtölum og fyrir nefndinni hefði ekki mátt koma skýrt fram í skýrslunni sjálfri.

Varðandi afsláttinn þá kom það vissulega á óvart að þarna voru minni fjárfestar og það var auðvitað gagnrýni í skýrslunni og kemur mjög skýrt fram í meirihlutaálitinu að þarna skorti á upplýsingagjöfina, Bankasýslan hafi ekki skýrt það nægilega vel hverjir þessir fjárfestar voru sem gátu tekið þátt í útboðinu til þess að það hefði einmitt getað farið fram umræða um hvort það hefði átt að vera þak eða eitthvað slíkt. Það átti sér ekki stað og þetta er eitthvað sem við höfum tekið undir allan þennan tíma, að upplýsingagjöfin hefði vissulega mátt vera betri. Eitthvað sem við lærum af.

Varðandi hugleiðingu um áframhaldandi sölu þá er ég mjög glöð yfir því að við munum fá stuðning Viðreisnar í því að halda áfram að selja hluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Það er engin stefnubreyting þar á. Ríkisstjórnin hefur boðað breytingar á þessu fyrirkomulagi. Við bíðum spennt eftir því að sjá hvernig frumvarpið lítur út og við ræðum það á Alþingi og vonandi getum við haldið áfram að losa um eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum.