153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[19:07]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ræðuna. Það var margt mjög gott í þessari ræðu, sérstaklega þessi brýning og vangaveltur um það hvernig við almennt höldum á þeim eignarhlutum sem eru á forræði ríkisins. Auðvitað skiptir öllu máli að vel sé farið að þegar verið er að reyna að koma þeim eignarhlutum í verð og verðmæti fyrir ríkissjóð. Það skiptir öllu máli. Ég ætla svo sem ekki að fara djúpt í þessa tillögu Miðflokksins um að gefa Íslendingum hlut í bankanum en mig minnir samt hins vegar að hæstv. fjármálaráðherra hafi tekið undir þetta hér einhvern tímann í þingsal, þetta væri eitt af því sem kæmi til greina. Mér finnst þetta sjálfum ekki neitt sérstaklega góð hugmynd, einkum og sér í lagi vegna þess hvernig árar og hver staða ríkissjóðs er fyrir utan þá staðreynd að það er gert ráð fyrir þessum verðmætum í fjárlögum yfirstandandi árs. En það sem mig langaði að fá að eiga orðastað við hv. þingmann um er hvort þessi sala hafi verið hagfelld fyrir ríkissjóð eða ekki. Ég hef nefnilega tekið eftir því að þeir sem eru á því að það hafi ekki mikið verið athugavert við þessa sölu hanga svolítið í þessu orðalagi, hagfellt fyrir ríkissjóð. Þá eru menn einhvern veginn fastir í upphæðinni sem fékkst fyrir hlutinn, þessum 50 milljörðum eða hvað það er. Alveg eins og hv. þingmaður kom inn á þá ríkir algjör óvissa um það hvað verður með þann eignarhluta ríkisins á fjármálafyrirtækjum sem er enn þá í okkar fangi. Það er þá bæði Landsbankinn og eftirstandandi hluti af Íslandsbanka. Þá langar mig til að spyrja hv. þingmann, af því að hann fór svo sem ekkert mikið í efnisatriði skýrslunnar í annars mjög góðri ræðu: Getur hann tekið undir það að hægt sé að tala um að svona sala sé hagfelld fyrir ríkissjóð þegar það er í algeru uppnámi hvort einhverjar framtíðartekjur koma inn í náinni framtíð í gegnum áframhaldandi sölu, sem er bein afleiðing af þessu klúðri sem var í framkvæmd sölunnar?