skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að ég hafi komið inn á það í byrjun ræðu minnar að ég teldi megintjónið af því hvernig til tókst þarna fyrir tæpu ári síðan felast í áhrifunum sem þetta hefði á áframhaldandi losun um eignarhlut ríkisins. Það tjón held ég að sé raunverulegt. Eins og þessi ríkisstjórn sem við sitjum uppi með núna er samsett þá held ég að við séum föst. Ég held að við séum föst þar til þetta kjörtímabil rennur sitt skeið á enda, hvenær sem það verður. Það er alveg óljóst hvort það verður á áður áætluðum tíma, en við sjáum til hvernig því fram vindur. Ég held að ég hafi komið inn á það í ræðu minni sömuleiðis að ef horft er þröngt á fjárhagslegu áhrif sölunnar, hvort sem við notum orðið hagfellt eða eitthvað annað, þá held ég að þar hafi tekist bara ágætlega til. Verðið verið eins og hægt var að búast við miðað við verð á markaði, umfang sölu, tíma og þetta allt saman. Ef horft er þröngt á það þá held ég að salan hafi tekist ágætlega. En síðan eru öll hin hliðaráhrifin sem eru miklu neikvæðari og ég held að þau alvarlegustu í þeim efnum séu þau áhrif sem mér þykir blasa við að verði af þessu á áframhaldandi losun eignarhlutar ríkissjóðs, m.a. í bönkunum tveimur.