153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[19:11]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Hann kom svo sem að hluta til inn á það sem ég ætlaði að eiga við hann orðastað um í mínu síðara andsvari, sem er einmitt þetta, bæði sem snýr að traustinu og svo út frá þeim pólitíska veruleika sem við erum í í dag. Það er nefnilega þannig að viðbragðið við þessari sölu var að leggja niður Bankasýsluna af því að það tókst svo illa til, það þurfti að leggja niður heila stofnun sem viðbragð við sölunni. Og síðan hafa menn verið að boða einhver fyrirheit um það að hingað inn í þingið komi eitthvert fyrirkomulag þar sem við þurfum þá að fara í gegnum það hvernig eigi að selja eftirstandandi eignarhluti í Íslandsbanka og eftir atvikum þá í Landsbankanum, ef menn fara í það. Það er hins vegar ákveðinn pólitískur veruleiki í þessari ríkisstjórn, eins og hv. þingmaður kom inn á, og það er kannski það sem ég myndi gjarnan vilja fá frekari skýringar á. Mín skoðun á þessu er nefnilega sú að fyrir þessa sölu þá hefði í sjálfu sér, ef vel hefði gengið, ekkert verið því til fyrirstöðu að þessir flokkar kláruðu að selja hluti í Íslandsbanka. En eftir þessa sölu held ég að sá flokkur í ríkisstjórninni sem er lengst til vinstri og er svona hálfpartinn með það í DNA-inu sínu að það sé ekkert sérstaklega gaman að selja ríkiseigur, eigi svolítið erfiðara um vik. Þá erum við aftur og enn eina ferðina komin í þessa pattstöðu sem er svo víða í samfélaginu, sem ríkir þegar við erum með flokk lengst til hægri og lengst til vinstri saman í ríkisstjórn.

Mig langaði bara að fá það fram frá hv. þingmanni hvort hann sé ekki bara nákvæmlega að vísa í þá staðreynd, þ.e. að þegar við erum með flokka sem spanna pólitíska litrófið svona vítt þá þurfi í sjálfu sér ekkert mikið að gerast til þess að það verði umrót þannig að það þurfi að falla frá einhverjum fyrirheitum, eins og þá á við í þessu tilfelli um áframhaldandi sölu.