153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[19:13]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Til þess að draga saman svarið við öllum þeim spurningum sem í andsvari hv. þingmanns voru þá held ég að það sé réttast að segja að hjá þessari ríkisstjórn gerist eiginlega ekki neitt. Þannig að ég er mjög efins um að nokkur hreyfing verði á hvað frekari sölu varðar innan þessa kjörtímabils, hversu langt sem það nú verður. Við sjáum bara lítið dæmi: Það er búið að tala um það hér árum saman að það sé ótækt að rafmagnsbílar keyri ókeypis á götum landsins og það er búið að flagga því þing eftir þing að nú séu að koma fram reglur um það hvernig eigi að standa að þessari gjaldtöku. Vitið þið hvað hefur gerst á þessu kjörtímabili? Ekki það. Þessi viðmið eru ekki komin fram og mér er það mjög til efs að þau komi fram á þessu þingi, sama með litla útlendingamálið. Það er það sama. Þeir eru svo ósamstæðir, þessir aumingjans flokkar sem mynda þessa ríkisstjórn, að það gerist ekki neitt. Og því miður þá held ég að það sé algerlega borin von að neitt hreyfist í málum hvað það varðar að losa um eignarhluti í ríkisbönkunum — það er kannski ósanngjarnt að kalla Íslandsbanka ríkisbanka. Jú, jú, við köllum hann það. Ríkissjóður er stærsti hluthafinn, langstærsti, og Landsbankinn er hér um bil að fullu í eigu ríkissjóðs. Ég held að því miður hafi þetta allt saman steytt á skeri og verði þar út þetta kjörtímabil og, eins og ég kom inn á í ræðu minni, í því felst mesta tjónið af því sem gerðist í kringum söluna á þessum hlut í Íslandsbanka fyrir tæpu ári síðan.