skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. 1. þm. Reykv. n. fyrir andsvarið. Fyrst að fyrstu spurningunni. Hvað tilboðsleiðina varðar þá hef ég alltaf talið það vera ágætisleið þegar er verið að selja stóran eignarhlut í félagi sem er þegar skráð á markað. Nú held ég að ég hafi rétt eftir forstjóra Bankasýslunnar frá þeim tíma er hann kom með sínu fólki fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á opnum fundi að mat hans væri það að þessi sala væri betur heppnuð heldur en fyrri salan á hlutum í Íslandsbanka. Eins og ég kom inn á í ræðu minni áðan þá er fjárhagslega niðurstaðan, ef við skoðum bara gengi hluta í bankanum á þeim tímapunkti sem sala fer fram og þann afslátt sem á endanum er veittur og hvaða áhrif þetta hefur síðan á eftirmarkað — það er allt hagfellt, svo ég noti nú það hugtak þó að hægt sé að nota önnur í þessu samhengi. En það eru síðan þessi hliðaráhrif sem verða, til að mynda að Íslandsbanki sé jafn „innvolveraður“ í söluferlið og viðskipti því tengdu og raunin varð, og fleiri slík atriði hafa orsakað það að eftirleikurinn veldur mesta skaðanum í þessu öllu, að frekari sala er ólíkleg, því miður.
Fleiri spurningar hv. þingmanns? (BN: Er tilefni til að fara í rannsóknarnefnd?) Er tilefni til að fara í rannsóknarnefnd? Ég held að ef við horfum til þess að fara í rannsóknarnefnd, og það var það sem ég var að reyna að koma inn á — ég skal vera stuttorður, frú forseti — þá ættum við að horfa á stærri mynd. Þá ættum við að horfa á alla meðferð þeirra eignarhluta sem komu inn til ríkissjóðs (Forseti hringir.) í tengslum við stöðugleikaframlög á sínum tíma. (Forseti hringir.) Ég held að það sé eitthvað sem við ættum frekar að skoða, sem sagt skoða Lindarhvol, sölur á þessu og öðrum þáttum í heildarmyndinni.