Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[19:22]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég væri til í að taka ákvörðun um að halda áfram á morgun en ég er ekki viss um að ríkisstjórnin geti tekið ákvörðun á þessu kjörtímabili í þeim efnum. Ég ítreka aftur að skaðinn af því hvernig eftirmálin urðu liggur fyrst og fremst í því að við komumst ekki áfram með því að losa þennan eignarhlut. Það getur verið ódýrt að standa hér í stjórnarandstöðu og segja að ég væri til í að taka þessa ákvörðun á morgun en það er samt raunverulega þannig af því að það blasir við hversu skynsamlegt það er, bæði út frá undirliggjandi áhættu sem núna speglast á ríkissjóð og hins vegar þeim tækifærum sem gæfust til niðurgreiðslu skulda eða til innviðafjárfestinga eða hverju sem verða vildi ef þessir eignarhlutir yrðu losaðir. Ég held að það liggi þannig að það sé alveg sama hvaða leið er farin, allt orkar tvímælis þá gert er. Allar leiðirnar hefðu kallað fram einhver áhrif á viðskiptagengi fyrir eða eftir, alveg sama hvaða leið hefði verið farin, og þegar svona stór eignarhlutur, rúmir 50 milljarðar, 22,5%, er settur á markaðinn yfir nótt, ef svo má segja, þá hefur það áhrif. Mér þótti tilboðsleiðin skynsamleg. Þetta er, eins og hv. þingmaður sagði, bara fyrirtæki sem er skráð á markaði. Það er búið að eiga sér stað verðmyndun með býsna ígrunduðum hætti yfir langan tíma. Ég kom beinlínis inn á það í ræðu minni að mér hefur ekki þótt neitt athugavert við verðið sem slíkt. Það eru hin atriðin sem eru kannski að strjúka mönnum öfugt, (Forseti hringir.) ef svo má segja, en verðið held ég að hafi verið ágætt (Forseti hringir.) og í takt við það sem við mátti búast miðað við verð á markaði dagana og vikurnar í aðdraganda sölunnar.