Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[19:24]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ríki sitt skyli ráðsnotra hver í hófi hafa, segir í Hávamálum. Í stuttu nútímalegu máli þýðir þetta einfaldlega að það eigi að fara vel með völd. Þetta er þekkt vísa og oft kveðin á öllum tungumálum í gegnum aldirnar, og ekki að ástæðulausu því að vald spillir og algjört vald spillir algjörlega, svo að vísað sé til rúmlega aldar gamals sagnfræðings. Hávamál voru nokkurs konar siðareglur, samfélagssáttmáli síns tíma sem snýst ekki um ábyrgð opinbers valds og réttindi borgara heldur fjalla Hávamál frekar um samskipti manna á milli. Frá tíma Hávamála höfum við sem samfélag lært ýmislegt um hversu nauðsynlegt það er að valdhafar sýni ábyrgð og við höfum því sett sífellt skýrari reglur og lög til að takmarka notkun valds. Nútímalög og reglur eru á aðgengilegu og skiljanlegu máli, t.d. siðareglur ráðherra, með leyfi forseta:

„Ráðherra forðast árekstra milli almannahagsmuna annars vegar og fjárhagslegra eða persónulegra hagsmuna sinna eða fjölskyldu sinnar hins vegar og gætir þess að persónuleg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín. Takist honum ekki að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra af þessu tagi skal hann upplýsa um þá.“

Siðareglur þingmanna, með leyfi forseta:

„Þingmenn skulu við störf sín forðast árekstra milli almannahagsmuna annars vegar og fjárhagslegra eða annarra persónulegra hagsmuna sinna eða fjölskyldu sinnar hins vegar. Takist þingmanni ekki að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra af þessu tagi skal hann upplýsa um þá.“

Vanhæfisreglur stjórnsýslulaga, með leyfi forseta:

„Ef hann er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar.“ — Þá er um vanhæfi að ræða.

Við ræðum hér um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og það er lagaleg staðreynd máls að fjármálaráðherra ber ábyrgð á þeirri sölu, eins og segir í lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, með leyfi forseta:

„Ráðherra tekur ákvörðun um hvort tilboð skuli samþykkt eða þeim hafnað og undirritar samninga fyrir hönd ríkisins um sölu eignarhlutarins.“

Í umræðum um þetta mál fyrir þinginu kom það fram í ræðum Sjálfstæðismanna að það væri verið að setja öll völd í hendur ráðherra. Það var mjög skýrt á þeim tíma. Sú ákvörðun var tekin að selja 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka í lokuðu útboði til fagfjárfesta. Hérna skiptir hugtakið „lokað útboð“ máli því að ýmsu hefur verið grautað saman í umræðunni um þetta mál. Þetta hugtak er algjört lykilatriði í þessu máli vegna þess að það skilur milli þess hvort hagsmunaárekstur eigi við eða ekki. Ef útboðið væri opið og aðgengilegt öllum á jafnræðisgrundvelli þá myndu hagsmunaárekstrar ekki skipta sama máli og ef útboðið er lokað, samanber t.d. fyrra útboðið sem var opið og aðgengilegt á jafnræðisgrundvelli, allir skertir eins, allir með aðgang til að kaupa.

Á fundi fjárlaganefndar með Bankasýslunni 27. apríl 2022 spurði ég fulltrúa Bankasýslunnar hvort ekki væri rétt að útboðið hafi verið lokað útboð til hæfra fjárfesta. Svarið var skýrt. Þar kom fram að útboðið væri bara til hæfra fjárfesta þannig að útboðið hefði verið afmarkað að því leyti — með leyfi forseta: Já.

Í minnisblaði Bankasýslu ríkisins til fjármála- og efnahagsráðherra frá 20. janúar 2022 segir um útboðsfyrirkomulagið, sem sagt þetta tilboðsfyrirkomulag sem er verið að fjalla um, með leyfi forseta:

„ Það er þó ljóst að slíkt fyrirkomulag er ekki að fullu í anda meginregla laga nr. 155/2012 um opið söluferli og gagnsæi. Þannig njóta ákveðnar fjárfestar betri réttinda en aðrir ásamt því að almenningur getur ekki tekið beinan þátt og þar með ekki tryggt fullt jafnræði bjóðenda.“ — Gerist ekki skýrara.

Svo að ég vísi aftur til opins fundar fjárlaganefndar 27. apríl kom þar fram í máli Bankasýslunnar að ráðherra hefði tekið ákvörðun um að skerða ætti skammtímafjárfesta meira en langtímafjárfesta. Bankasýslan útfærði þá skerðingu á grundvelli heimildar frá ráðherra. Þetta kemur fram á opnum fundi með Bankasýslunni og voru bein svör Bankasýslunnar við mínum spurningum. Miðað við það að ákveðnir fjárfestar njóti betri réttinda en aðrir, að tilboðsfyrirkomulagið tryggi ekki fullt jafnræði, að það hafi verið ákvörðun ráðherra að skerða suma fjárfesta meira en aðra og þeirrar niðurstöðu Ríkisendurskoðunar að ákvarðanir Bankasýslunnar um niðurskurð á tilboðum hafi að miklu leyti byggt á huglægum forsendum þarf að huga að mjög mörgum atriðum til að tryggja sanngirni í ferlinu. Einfaldasta atriðið sem er hægt að tryggja er að ekki sé um neina hagsmunaárekstra að ræða.

Það er staðreynd að Hafsilfur, sem er alfarið í eigu föður fjármálaráðherra, keypti hlut í Íslandsbanka fyrir 54 millj. kr. í lokuðu útboði þar sem fjármálaráðherra bar ábyrgð á því að samþykkja eða hafna tilboðum í útboði þar sem mismunandi aðilum var mismunað eftir huglægu mati, í útboði þar sem ekki allir höfðu þátttökurétt.

Forseti. Það þarf einbeittan brotavilja til að hunsa augljósan hagsmunaárekstur fjármálaráðherra í þessu máli, einbeittan brotavilja. En í stað þess að viðurkenna vandann er pakkað í vörn. Varðhundar valdsins hópast saman og gelta og gelta og gelta og gelta og gelta og gelta.

Fyrsta geltið snýst um að snúa út úr því að lokað útboð til hæfra fjárfesta sé lokað, það sé í rauninni ekki lokað heldur sé það opið útboð til hæfra fjárfesta, að allir hæfir fjárfestar hafi mátt taka þátt, að það geri það einhvern veginn að verkum að jafnræði hafi verið til staðar sem gerir það að verkum að fjármálaráðherra er fjarlægður frá ákvarðanatökunni. Sú staðreynd að mismunandi tilboðsgjafar voru skertir mismikið fellir þá vörn, alveg nákvæmlega eins og segir í minnisblaði Bankasýslunnar frá því fyrir söluferlið: Ákveðnir fjárfestar njóta betri réttinda en aðrir.

Annað geltið snýst um að fjármálaráðherra hafi ekki átt að leggja mat á hvert eitt og einasta tilboð, að ákvörðun ráðherra hafi eingöngu snúist um að taka ákvörðun um heildarmagn seldra hluta og verð þeirra. Lögin um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum fellir þá vörn. Þar segir skýrt, með leyfi forseta:

„Ráðherra tekur ákvörðun um hvort tilboð skuli samþykkt eða þeim hafnað og undirritar samninga fyrir hönd ríkisins um sölu eignarhlutarins.“

Þetta er nánar útskýrt í greinargerð frumvarpsins þar sem fjallað er um muninn á almennu útboði og þeirri tilboðssölu sem var notuð í því útboði sem hér um ræðir, með leyfi forseta:

„Sala hluta með útboði eða skráning bréfa í kauphöll er ferli sem er frábrugðið hefðbundinni tilboðssölu. Sem dæmi er ekki um mat á einstaka tilboðum eða eiginlegar samningaviðræður við einstaka kaupendur að ræða þegar almennt útboð eða skráning bréfa fer fram.“ — Sem þýðir að þegar tilboðssala er í gangi þá er um mat á einstökum tilboðum að ræða. Með öðrum orðum á að fara fram mat á einstökum tilboðum þegar um tilboðssölu er að ræða. Ráðherra tekur svo ákvörðun um hvort tilboð skuli samþykkt eða þeim hafnað. Til grundvallar ákvörðun sinni á ráðherra að hafa þetta mat á tilboðum sem verður ekki séð af gögnum málsins að hafi legið fyrir né að ráðherra hafi gert kröfu um að fá.

Þriðja geltið er útúrsnúningur. Þar er lögð fram ákveðin áskorun í umræðuna um að svara þeirri spurningu um föður fjármálaráðherra hvort hann hafi ekki mátt kaupa. Má hann ekki kaupa? Ha? Mátti hann ekki kaupa? Þessi spurning er gildra þar sem er gert ráð fyrir því að ef svarið er nei þá þurfi að útskýra af hverju, sem er alveg ómögulegt miðað við óljósar forsendur útboðsins, og ef svarið er já, hann mátti kaupa, þá einhvern veginn er það bara í fína lagi. Fyrst hann mátti nú kaupa þá er það bara hans réttur og málinu er þar með lokið. Þetta er gildra vegna þess að þótt líklega sé rétt að faðir fjármálaráðherra hafi mátt kaupa í þessu útboði þýðir það ekki að fjármálaráðherra megi selja föður sínum hlut í Íslandsbanka. Hagsmunaárekstur útilokar einmitt slíkan gjörning. Þetta er augljóst og það er alger hneisa að það þurfi að segja þetta upphátt, hvað þá að ekki sé búið að bregðast við þessu á heiðarlegan hátt — segi ég og horfi á alla stjórnarþingmenn í þessum sal og hugsa til þeirra sem eru annars staðar.

Fjórða geltið er að engin lög hafi verið brotin. Það er bara einfaldlega ekki búið að skoða það allt. Við vitum um ferlið hjá Íslandsbanka sem gerir ráð fyrir því að greiða þurfi skaðabótakröfu vegna brota á lögum og reglum. Fullyrðingar ríkisendurskoðanda eru sitt á hvað, hvort það hafi verið á hans ábyrgð að grannskoða niður í að taka lögfræðilegt álitaefni um hvort lög hafi verið brotin eða hvort það hafi ekki verið. Ríkisendurskoðun segir hvort tveggja.

Og hvort eigum við að miða við? Stjórnarliðar vilja endilega miða við það að ríkisendurskoðandi hafi sagt að hann sjái ekki að nein lög hafi verið brotin. Ég bendi hins vegar á að það er hvort tveggja þarna. Við verðum að horfa til beggja þessara staðhæfinga sem ganga ekki upp hlið við hlið. Ég er ekki að taka þá afstöðu sem er í rauninni tekin í skýrslunni þar sem er sagt sérstaklega að ríkisendurskoðandi taki ekki tillit til lögfræðilegra álitaefna. Ég segi að það sé þessi munur þarna á, þetta misræmi sem við verðum að fá skýrt svar við og höfum ekki fengið.

Fimmta geltið er að það hafi einhvern veginn verið að frumkvæði ráðherra að kallað var eftir þessari rannsókn Ríkisendurskoðunar og líka að ráðherra hafi birt þennan lista yfir kaupendur. En það gefur augaleið að það var augljóst, svo að ég tvítaki það, að það hefði komið í ljós að faðir fjármálaráðherra var einn af kaupendum. Og ef ráðherra hefði komið í veg fyrir birtingu listans og það hefði komið í ljós seinna að faðir hans var einn af kaupendunum þá hefði það verið búið spil. Þetta lítur út eins og hann sé að reyna að vera gagnsær á einhvern hátt en í raun og veru er hann bara að bjarga eigin skinni hvað það varðar að það líti mögulega út eins og hann sé samstarfsþýður þegar þetta er ekkert annað en sjálfsbjargarviðleitni sem segir í rauninni ekkert um neitt annað í þessu ferli en að það er stórt vandamál hér á ferð.

Sjötta geltið snýst um að segja að fjármálaráðherra hafi ekki haft hugmynd um að faðir hans hafi verið að kaupa hlut í bankanum og þar af leiðandi hafi enginn hagsmunaárekstur geta átt sér stað. Ef fjármálaráðherra vissi ekkert gat hann ekki tekið neinar ívilnandi ákvarðanir fyrir sig og sína. Ég verð að segja að þetta er lélegasta vörnin af þeim öllum. Það er ekki málsvörn í hagsmunaárekstrarmáli að ráðherra hafi ekki vitað af hagsmunum sínum. Ráðherra á að sinna rannsóknarskyldu og fyrsta spurningin sem ráðherra hlýtur alltaf að þurfa að spyrja er hvort hann sé hæfur til þess að taka ákvörðun. Við þekkjum þetta í tilfellum þar sem ráðherra skipar embættismenn. Ef einhver umsækjenda er tengdur ráðherra þá hefur ráðherra stigið til hliðar út af hagsmunaárekstri — auðvitað. Nákvæmlega sama gildir þegar verið að selja hlut í ríkiseigu. Ef einhver af þeim sem bjóðast til að kaupa hlut er tengdur ráðherra þá stígur ráðherra til hliðar — auðvitað.

Það er mjög skýrt að ráðherra skal sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Siðareglur kveða á um hagsmunatengsl, lög kveða á um hagsmunatengsl en ráðherra segir bara „ég vissi ekkert“ og ætlast til þess að við trúum því. Vandinn er að við eigum ekki að þurfa trúa því, það á bara að tryggja að ekki sé um hagsmunaárekstra að ræða. Við getum ómögulega gengið úr skugga um að engin samskipti hafi átt sér stað á milli fjármálaráðherra og föður hans af því að það eru svo mikil tækifæri tengdra aðila til að eiga óformleg samskipti. Þetta varnargelt um að vita ekkert er því sjálfdautt. Enn fremur er þetta vísbending um að ráðherra og varðhundar hans viti að ef ráðherra hefði vitað af þessum hagsmunaárekstri þá hefði þurft að gera eitthvað í málinu — að sjálfsögðu.

Þegar hér er komið sögu þurfum við að spyrja okkur ansi stórra spurninga því að það er margt sem fjármálaráðherra vissi ekki. Sagan segir okkur það um Vafning og ýmislegt svoleiðis, en það er einhvern veginn bara áróður. Ég spurði ráðherra hvort það væri hollt ef ráðherra, og í rauninni meiri hlutinn, kæmist upp með að þetta mál gengi svona í gegn án ábyrgðar. Og það var víst bara, eins og ég segi, „áróður“, þrátt fyrir alla söguna; Vafning, Sjóð 9, Borgun, Falson, skýrslufeluleikinn, Ásmundarsal, Samherjamálið, sendiherrakapalinn, lögbannsmálið — allt þetta. Svona spurningar voru að mati ráðherra bara áróður og hann montaði sig einmitt af öllum atkvæðunum sem hann hafði fengið í kosningunum máli sínu til stuðnings. Það er alveg rétt að fjármálaráðherra fær fullt af atkvæðum í kosningum en það þarf einnig að ítreka að hann er sá ráðherra sem fólk treystir sem minnst, í miklu lægra hlutfalli en stuðningurinn er.

Ég verð því að spyrja stjórnarliða bara þessarar sömu spurningar: Haldið þið í alvörunni að það sé hollt fyrir íslenskt samfélag að fjármálaráðherra komist upp með að selja pabba sínum banka? Mun það í alvörunni leiða til meira trausts á stjórnmálunum og betra samfélags? Hafið þið í alvörunni íhugað afleiðingar þessarar varðstöðu ykkar? Í alvörunni? Þetta er ekkert gamanmál.

Ég mun alla vega leggja áherslu á að þegar næstu kosningar koma þá verði eitt af þeim málum sem þurfi að ganga í á kjörtímabilinu, á eftir þessu, að kalla til rannsóknarnefnd. Það eru bara atkvæðin sem ráða til um hvernig það fer.