153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[19:39]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég er hálfáttavilltur, hvaðan öll þessi lögfræðigreining kemur og á hvaða rökum og heimildum hún er byggð. Hér erum við að fjalla um mál þar sem það var tekin ákvörðun um að selja banka. Þingið var upplýst um hvernig það yrði gert, sú framkvæmd var framkvæmd og svo kom eftirlitsstofnun Alþingis, Ríkisendurskoðun, og tók út þetta ferli, kom vissulega með athugasemdir og annað slíkt en kom ekki með þá dómsniðurstöðu sem hv. þingmaður var að þylja hér upp í löngu máli rétt áðan. Því spyr ég: Hvaða gögn eða hverjir aðrir eru að halda fram því sem hv. þingmaður segir? Ekki er það eftirlitsstofnun Alþingis, Ríkisendurskoðun, sem heldur því fram, um lögbrot eða slæmt ferli sem hér fór fram. Niðurstaða Ríkisendurskoðunar segir það ekki.

Svo vil ég koma inn á annað, hvort hv. þingmaður geri ekki greinarmun á störfum Ríkisendurskoðunar og hvaða eftirlitshlutverk með söluferlinu Ríkisendurskoðun hefur og síðan á eftirliti með fjármálafyrirtækjum sem Seðlabankinn hefur á hendi. Þetta er sitthvor hluturinn. Ríkisendurskoðun benti á að það væri ekki lögbrot, þau hefðu ekki orðið vör við lögbrot, enda ber þeim að tilkynna það ef þau sjá slíkt í sinni skoðun. Hins vegar það sem á eftir kemur, starfsemi fjármálafyrirtækja eins og Íslandsbanka, er undir öðru eftirliti og það var ekki verið að skoða það í þessari skýrslu, það er Fjármálaeftirlit Seðlabankans sem gerir það.