skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .
Forseti. Ég veit ekki hvað var óskiljanlegt við þetta. Ég las upp úr siðareglum þingmanna, ég las upp úr lögum, mjög einfaldar tilvitnanir. Það er ekkert flókið við það þannig að ég veit ekki hversu erfitt er að skilja það. Ég ætla að segja það bara upphátt: Það var ómögulegt, það var gjörsamlega ómögulegt að fá stjórnsýslufræðinga fyrir þingið og setja skriflega á blað hvort þeir teldu að gengið hefði verið á stjórnsýslulög á einhvern hátt. Það var ómögulegt. Ég ætla að segja það líka upphátt að ég tel ástæðuna fyrir því vera að við erum með einfaldlega mjög spillt samfélag þar sem t.d. hæstv. fjármálaráðherra hlutast um skipun ritstjóra fræðirits. Það er ástæða fyrir því að margir fræðimenn forðast að tala á einhvern hátt pólitískt. Ég þekki það úr háskólasamfélaginu, ég hef heyrt það mjög oft að fræðimenn þar vara hver annan við því að segja eitthvað sem geti orkað vilhallt á einn eða annan hátt, á pólitískan hátt. Það er bara staðan. Þið þekkið þetta alveg, þið sem farið út á land til að reyna að fá fólk til þess að tala illa um eða upplýsa um þau álitamál sem eru þar í gangi. Nema þegar ég var t.d. í Þorlákshöfn fyrir nokkrum árum þegar kvótinn fór, þá allt í einu þorðu allir að segja upphátt hvað var að. Bara svo ég nefni það sem dæmi. Við eigum í þessum vanda að fræðimenn geta ekki komið og sagt okkur skriflega og heiðarlega frá því hvað er í gangi með stjórnsýslu ráðherra í þessu máli. Ég spyr hv. þingmann einfaldlega bara beint á móti: Var skoðað hvort stjórnsýsla ráðherra hefði verið á einhvern hátt ámælisverð í þessu máli á einhvern ítarlegan hátt?