153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf.

784. mál
[19:44]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það sem ég er einfaldlega að benda á er að hér kemur hv. þingmaður með hinar ýmsu samsæriskenningar, les upp hinar ýmsu lagareglur og minnisblöð og siðareglur og ég veit ekki hvað og fullyrðir að hér hafi verið um lögbrot að ræða og óeðlilega haft við og annað slíkt á meðan fjöldinn allur af fólki sem hafði áhuga á að kaupa í Íslandsbanka og fólk sem bæði keypti og var skert meira en aðrir hefur ekki farið lengra með sín mál eftir að það fékk upplýsingar um ferlið. Eftir að allar upplýsingar voru veittar þá veit ég ekki um neinn sem hefur verið að vefengja þetta ferli. Eftirlitsstofnun Alþingis, ríkisendurskoðandi sem Alþingi kýs, er búin að fara yfir og skoða málið. Ég treysti því að það hafi verið skoðað í þaula það sem beðið var um. Ég bara treysti því. Hv. þingmaður lýsir því líka að það hafi enginn fengist til þess að lýsa því að hér hafi augljóslega verið brotin lög eins og hv. þingmaðurinn er búinn að halda heila ræðu um að sé algerlega augljóst og allir eigi að sjá. Ég er bara að spyrja hv. þingmann hvort hann viti um einhvern annan heldur en hann sjálfan sem sér svona augljós lögbrot. Ég hef ekki heyrt um neinn annan, ég er að inna hv. þingmann eftir því hvort það sé einhver annar en hann sjálfur sem sjái þessi augljósu lögbrot eða ekki. Ekki er það Ríkisendurskoðun, ekki eru það þeir sem tóku þátt í útboðinu og ekki eru það þeir sem voru vissulega fagfjárfestar en fengu ekki að kaupa.