153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[20:14]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Nei, ég er ekki sammála því að það sé almennt þannig að við skipum rannsóknarnefnd til að fjalla um lögfræðilegan ágreining okkar á milli. Það er ekki þannig. (Gripið fram í.) Það er nákvæmlega þannig að ef við ætlum að skipa rannsóknarnefnd þarf eitthvað að gefa okkur ástæðu til þess. Nú er Ríkisendurskoðun búin að fara yfir þetta á þessum grunni, alveg eins og með stjórnsýslulögin, skoða allt út frá stjórnsýslulögum, upplýsingalögum o.s.frv. (Gripið fram í.) Jú, hann auðvitað fer yfir það. [Frammíköll í þingsal. Bara það að tala ekki um það, þá er ekki þar með sagt að hann skoði það ekki. Það er ekkert sem gefur honum tilefni til að ætla það að hér hafi verið einhver brot. Ef menn telja að eitthvað gefi þeim tilefni til þess þá benda þeir á það. Þó að þeir skoði það ekki sjálfir þá benda þeir á það. Við förum ekki, bara af því að einhverjir þingmenn hérna segja það, að skipa rannsóknarnefnd til að úrskurða fyrir okkur hvað sé lögfræðilega rétt. Eigum við að gera það í hverju einasta máli? Í hvert skipti sem ráðherra gerir eitthvað eða þingið afgreiðir eitthvað eða Bankasýslan þá komi hérna menn og segi: Við skipum rannsóknarnefnd til að segja okkur hvort menn hafi gert allt lögfræðilega rétt? Eru menn að biðja um það? (ÞSÆ: Ef ráðherra selur pabba sínum banka aftur skulum við …) Það er ekkert svona, þetta er orðið svo þreytt og lummó (Forseti hringir.)

(Forseti (AIJ): Þingmaðurinn hefur orðið.)

að hálfa væri nóg. Það tekur heldur enginn mark á ykkur lengur. Það hlustar enginn á ykkur lengur. Fjölmiðlar hafa ekki einu sinni áhuga á ykkur lengur. Þetta er orðið svo þreytt þus um ekki neitt að meira að segja þjóðin er alveg búin að fá nóg, ég fullyrði það. Ég er búinn að fá nóg af ykkur. Takk fyrir. — Og ég er ekki á hugvíkkandi.