153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[20:16]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta var svolítið hressandi yfirferð hjá hv. þm. Brynjari Níelssyni eins og hans er von og vísa; moldviðri, hægðatregða, alls konar svona fúkyrði notuð, hefðbundnum ónotum kastað fram í stjórnarandstöðuna, allt eftir bókinni eins og maður átti von á. Hann skilur ekkert í því af hverju er verið að biðja um að málið verði skoðað betur, talar um það að Bankasýslan hafi staðið sig með eindæmum vel þegar fyrir liggur að ráðherrar í ríkisstjórn þeirri sem hv. þingmaður styður hafa talað um þetta sem klúður, hafa talað um að Bankasýslan hafi klúðrað hlutunum. Það þurfti að leggja stofnunina niður, svo miklu var klúðrað. Það var nú bara panikfundurinn í ríkisstjórninni heila páskahelgi, hvernig væri hægt að bregðast við, og niðurstaðan var sú: Bankasýslan stóð sig svo illa að við ætlum að leggja niður stofnunina. Þetta er bara eitt af því sem hægt er að nefna í þessu.

Hv. þingmaður fór sjálfur yfir fullt af atriðum sem fóru úrskeiðis við söluna. Hér undir eru rúmlega 50 milljarðar af almannafé. Ég get ekki lesið annað út úr orðum hv. þingmanns en að honum sé slétt sama hvernig farið er með þær fjárreiður. Honum er nákvæmlega sama hvernig stjórnsýslan í kringum þessa hluti er. Honum er nákvæmlega sama um það hvort almenningur hafi traust á því þegar til stendur að selja meira af eigum almennings af hálfu sömu aðila. Það kemur skýrt fram í lögum um rannsóknarnefnd að henni megi fela það verkefni að gefa álit sitt á því hvort til staðar kunni að vera lögfræðileg atriði sem gætu varpað ljósi á hvort tilefni sé til þess að þar til bær stjórnvöld kanni grundvöll ábyrgðar einstaklinga eða lögaðila. Það er líka talað um að ef nefndin telur að ætla megi að opinber starfsmaður hafi gerst brotlegur við starfsskyldur sínar samkvæmt ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eða ákvæðum annarra laga sem gilda um störf hans skal hún tilkynna viðkomandi forstöðumanni þar um og hlutaðeigandi ráðuneyti. Allt sem hv. þingmaðurinn var að segja hérna áðan fellur algerlega um sjálft sig vegna þess að það er tilgangur rannsóknarnefnda bæði að fara yfir þessi atriði sem ég var að nefna (Forseti hringir.) og eftir atvikum að leiða í ljós önnur atvik sem ekki hafi komið fram. Þegar um er að ræða 50 milljarða (Forseti hringir.) af almannafé þá held ég að það sé betra að gera frekar aðeins meira en minna, því að hv. þingmanni virðist vera nákvæmlega sama um það (Forseti hringir.) hvernig við förum með fjárreiður almennings.