153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[20:21]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig hv. þingmaðurinn fær það út að það myndi kosta mörghundruð milljónir að stofna þessa rannsóknarnefnd. Nefndin sem skilaði áliti sínu um Búnaðarbankann starfaði í fáeina mánuði og það voru ekki margir starfandi þar og ég hygg að hún hafi ekki kostað mörghundruð milljónir. En auðvitað er þetta einhver kostnaður sem fer í það að skoða þetta. Hv. þingmaður skautar alveg ofboðslega létt yfir það sem ríkisendurskoðandi þó sagði í skýrslunni og sem meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er sammála minni hlutanum um, þ.e. að það er allt of mikið um almennar ályktanir án þess að það komi einhver niðurstaða út úr því. Það er hins vegar alveg ljóst að um svona ferli gilda ýmis lög sem ríkisendurskoðandi mátaði sig ekki við. Það kemur skýrt fram hjá fyrrverandi umboðsmanni Alþingis, Tryggva Gunnarssyni, og af því að hv. þingmaðurinn er að brigsla mönnum um að þeir hafi ekki verið að lesa gögn málsins þá held ég að hv. þingmaður hefði gott af því að lesa talpunkta Tryggva Gunnarssonar. Þeir eru um margt áhugaverðir, þeir einfaldlega leiða okkur að þeirri niðurstöðu að ofan á allt klúðrið sem Ríkisendurskoðun er að rekja í sinni skýrslu var fullt af atriðum sem aldrei voru tekin til skoðunar. Þegar undir eru 50 milljarðar af almannafé, jafnvel mögulega 100 milljarðar til viðbótar í þessum banka og 200 milljarðar til viðbótar í næsta banka sem mögulega verður einhvern tímann farið í að selja þótt það gerist sennilega ekki í tíð þessarar vinstri stjórnar sem hv. þingmaður styður með svona miklum ráðum og dáð, þá er þetta einfaldlega eitthvað sem við skuldum almenningi að fara betur yfir. Það er auðvitað bara það sem er. Það liggur alveg fyrir að það er ekkert traust til áframhaldandi sölu og það liggur alveg fyrir að svona umræða, svona orðanotkun og svona fúkyrðaflaumur, eins og hv. þingmaður kemur hér með, er ekki til þess fallið að efla traust manna á því hvernig best sé að standa að því að fara með eigur almennings.