Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[20:25]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Við lok þessarar umræðu er kannski ráðlegt að fara aðeins í lok skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Á fundi Ríkisendurskoðunar með STJ Advisors og forstjóra Bankasýslunnar kom fram að viðteknar venjur á hlutabréfamörkuðum, hvað varðar úthlutun og skerðingar í söluferli með tilboðsfyrirkomulagi, geta falið í sér að þeir tilboðsgjafar sem stutt hafa við væntingar seljanda um verð og magn í ferlinu eru verðlaunaðir á meðan þeir sem taldir eru hafa verið óhjálplegir, t.d. með tilboðum undir væntingum seljanda, er refsað. Ríkisendurskoðun telur þetta athyglisvert í ljósi þess að nokkrir erlendir fjárfestar voru skertir minnst allra í söluferlinu. Í einu þessara tilfella endurspeglaði lágt skerðingarhlutfall ekki framlag fjárfestisins til hagfelldrar þróunar söluferlisins en leiðbeinandi lokaverð tók fyrst og fremst mið af því hæsta verði sem Bankasýslan, ráðgjafar hennar og umsjónaraðilar töldu viðkomandi vera reiðubúna til að greiða í söluferlinu.“

Og einnig segir þar, með leyfi forseta, að annmarkar söluferlisins sem Ríkisendurskoðun fjallar um í þessari úttekt séu fjölþættir og lúti bæði að undirbúningi, þar sem ráðherra og Bankasýslan koma að, og framkvæmd sölunnar, sem er hjá Bankasýslunni og söluaðilum og að lokum með ákvörðunum ráðherra.

„Ljóst má vera að orðsporðsáhætta við sölu opinberra eigna var vanmetin fyrir söluferlið 22. mars af Bankasýslu ríkisins, fjármála- og efnahagsráðuneyti og þingnefndum sem um málið fjölluðu í aðdraganda sölunnar.“

Þetta eru lokaorð skýrslu Ríkisendurskoðunar. Ef þetta er ekki tilefni til þess að kafa ítarlega ofan í það hvað þessar ábendingar þýða, miðað við upphafsorð skýrslunnar um að Ríkisendurskoðun taki ekki fyrir álitsefni um lögfræðilega mismunun, þá veit ég ekki hvað. Og hvað þá um mismunandi skerðingarhlutföll, en það hefur komið ítrekað fram á opnum fundum nefndarinnar að það var huglægt mat á því í hvaða flokk hver aðili féll og fékk þar af leiðandi mismunandi skerðingarhlutfall. Þetta hlýtur að hafa áhrif á það hvaða augum við lítum jafnræði þarna því að það er alveg skýrt að það var ekki til staðar. Þegar það er ekki til staðar þá skipta önnur álitamál eins og efnisreglur máli.

Hérna hefur verið talað um að það sé svo mikilvægt að selja bankana af því að það sé áhætta að eiga banka, við eigum að koma þeim strax í verð, koma þessum 300 milljörðum eða hvað það er í virkni. En ég veit ekki annað en að það hafi bara verið mjög ábatasamt fyrir ríkið að eiga banka, það hafa komið ansi miklar arðgreiðslur. Og ef það er svona áhættusamt að eiga banka af hverju vilja þá allir að kaupa þá? Mér finnst það áhugaverð nálgun á þetta. Þegar allt kemur til alls, samkvæmt lögum um opinber fjármál, þá þarf að svara fyrir það ef það á að skipta út einni fjárfestingu fyrir aðra. Er verið að taka ábatasama eign ríkisins og skipta henni út fyrir einhverja aðra sem er þá hvað, ábatasamari? Ef hún er ekki ábatasamari, af hverju þá að gera það? Er það bara af því að pólitísk hugmyndafræði segir: Nei, við viljum af hugmyndafræðilegum ástæðum ekki að ríkið eigi banka því að þá græðir ríkið meira heldur en ef við setjum þetta í aðrar fjárfestingar. Við viljum að hugmyndafræðin ráði á þann hátt að við græðum minna á því sem samfélag.

Annar vinkill á þetta er að þegar ríkið á banka og er með hagnaðarkröfu á bankana, er það ekki óbein skattheimta? Sem hver ræður? Ekki þingið sem á að vera löggjafinn heldur bankinn eða framkvæmdarvaldið sem gerir einhverja hagnaðarkröfu sem er í rauninni óbein skattheimta á þá sem borga vexti sem drífa áfram þann hagnað.

Hér hafa komið fram ýmsar fullyrðingar um það hversu góð þessi sala hafi verið af því að eftirmarkaðurinn var svo góður, en það er nákvæmlega ekkert sem segir okkur að hann hefði ekki verið allt öðruvísi ef þetta hefði verið gert betur. Hækkunin hefði verið meiri. Ef við eigum að bera það saman við fyrstu söluna, þar sem eftirmarkaðurinn fór langt fram úr því sem umsagnaraðilar sögðu að væri eðlilegt við slíka sölu, þá getum við ekki tekið hvoru tveggja sem jákvæðum niðurstöðum. (Forseti hringir.) Önnur niðurstaðan hlýtur þá að vera slæm. (Forseti hringir.) Í tilviki þess gengis sem við fengum fyrir bankann þá var fyrri salan tvímælalaust slæm hvað það varðar. Seinni var skárri, en allt annað í ferlinu var hörmulegt.