lögfræðiálit um greingargerð vegna Lindarhvols, svör við fyrirspurnum.
Herra forseti. Eins og þið hafið eflaust tekið eftir er talsverður áhugi á því að skýrsla setts ríkisendurskoðanda frá 2018 verði birt. Hæstv. forseti hefur heldur slegið í og úr hvað það varðar og nú síðast í umræðum um fundarstjórn forseta í gær, og raunar kannski áður, taldi hæstv. forseti vafa leika á því hvort birta mætti lögfræðiálit sem var sérstaklega unnið um hvort mætti birta þessa greinargerð. En þá upplýsi ég hæstv. forseta um það að Miðflokkurinn lét á sínum tíma vinna óháð lögfræðiálit um heimild þingsins til að birta þessa greinargerð og ég velti fyrir mér hvort þetta geti leyst málið fyrir hæstv. forseta, hvort þessi greinargerð, sem er ekki háð neinum þeim takmörkunum sem hæstv. forseti virðist hafa áhyggjur af, geti ekki orðið til þess að hæstv. forseti klári loksins þetta mál.