153. löggjafarþing — 71. fundur,  1. mars 2023.

hækkun verðbólgu.

[15:21]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég hef nú viljað standa fyrir upplýstri umræðu um þessi efni sem er byggð á gögnum. Þess vegna átti ég frumkvæði að því að vefurinn tekjusagan.is yrði opnaður. Þar er hægt að skoða þetta bara mjög vel á grundvelli opinberra gagna og skattframtala, þessa hópa sem hv. þingmaður er sérstaklega að tala fyrir og hvernig ráðstöfunartekjur þeirra hafa vaxið á undanförnum árum, lægstu tekjutíundanna, langt umfram það sem hefur verið að gerast í nágrannalöndunum. Það eru þessir raunverulegu peningar vegna þess að við erum að tala um ráðstöfunartekjur sem er mælingin á því hvað stendur eftir þegar þú hefur greitt skattana þína.

Þegar hv. þingmaður talar um að við eigum að taka persónuafsláttinn af sumum hópum þeirra sem eru ofar í tekjustiganum þá bara bendi ég á það að tekjuskattskerfið hjá okkur er einmitt þannig byggt upp að þeir sem eru efst í tekjustiganum borga hærri skatta og eftir að þeir hafa komist yfir milljón í tekjur á mánuði þá borga þeir 4,6 kr. í skatta af hverjum 10 sem þeir þéna. Þannig að þetta er það kerfi. (Forseti hringir.) Ég velti því bara fyrir mér hversu hátt yfir 50% hv. þingmaður er að tala um að skattarnir eiga að fara t.d. á lækna og aðra sem við þurfum á að halda í heilbrigðiskerfinu. (Forseti hringir.) Og ég var ekki bara að tala um persónuafsláttinn, ég var líka að tala um hugmyndir Flokks fólksins (Forseti hringir.) um að afnema allar skerðingar í almannatryggingum sem myndu kosta tugi milljarða.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir enn og aftur á takmarkaðan ræðutíma sem er tvær mínútur í fyrri fyrirspurn og svari en ein mínúta í síðara skiptið.)