lækkun tolla og gjalda á innfluttar matvörur.
Herra forseti. Ég er í nokkurn vanda settur eftir svar hæstv. fjármálaráðherra til hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur áðan, þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins birtist eiginlega sem leiðtogi jafnaðarmanna á Íslandi og virtist telja lausnina á öllum vanda felast í skatta- og gjaldahækkunum. En ég ætla að halda mínu striki og spyrja hæstv. ráðherra, af því að hann virðist hafa raunverulegar áhyggjur af verðbólgunni nú. Ég veit að hann hefur ekki tekið mikið undir tillögur Miðflokksins frá því í fyrra um að bregðast við þessum fyrirséða vanda, t.d. með því að eyða ekki svona svakalega miklum peningum eða leggja ekki línurnar við upphaf nýs árs með gjalda- og skattahækkunum, sem aðrir vísa svo í sem réttlætingu fyrir hækkunum gjalda, og hugmyndir um að lækka, þótt ekki væri nema tímabundið, ofurgjöld á eldsneyti, sem hefði áhrif mjög hratt, og jafnvel neðra þrep virðisaukaskatts, sem hefur áhrif á verð nauðsynjavara, auk ýmissa aðgerða í húsnæðismálum.
Hæstv. ráðherra hefur ekki tekið undir þetta en það sem vakti þó athygli mína og áhyggjur var viðtal við hæstv. ráðherra í ríkissjónvarpinu í gærkvöldi þar sem ráðherrann virtist telja eina af vænlegustu lausnunum eða viðbrögðunum við þessu ástandi vera að lækka tolla á innfluttar landbúnaðarvörur. Ég vildi bara spyrja hæstv. ráðherra: Er raunverulega til skoðunar að lækka einhliða tolla á innfluttar landbúnaðarafurðir og þrengja þar með enn frekar að stöðu íslenskra bænda, sem hefur verið sótt að í tíð þessarar ríkisstjórnar úr mörgum áttum? Hvers vegna að gera það fremur en að lækka skattinn almennt á matvæli ef raunin er að það sé til skoðunar að rústa samkeppnisstöðu íslensks landbúnaðar?