lækkun tolla og gjalda á innfluttar matvörur.
Virðulegi forseti. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr þá er það nú þannig að það er réttur tími fyrir skattalækkanir og það er rangur tími fyrir skattalækkanir. Við höfum staðið fyrir umtalsverðum skatta- og gjaldalækkunum á undanförnum tíu árum og ég hef tekið þátt í því með hv. þingmanni m.a. að tryggja framgang slíkra mála hér í þinginu. En akkúrat í augnablikinu, þegar verðbólgan mælist í 10% og Seðlabankinn hefur hækkað vexti 11 sinnum í röð, þá er ekki rétti tíminn til að tala fyrir umfangsmiklum þensluhvetjandi aðgerðum. Ég myndi hins vegar gjarnan vilja að menn settust yfir það mjög vandlega fyrir næstu kjaralotu þegar næstu samningar verða gerðir, vonandi til lengri tíma, hvort ekki væri skynsamlegra að fara þá leið að létta sköttum af launþegum í landinu yfir tíma kjarasamningsins frekar en að treysta á að atvinnurekendur þyrftu að bera allan þungann af samningnum og hækka þannig hjá sér launahlutföllin, sem hefur tilhneigingu til að leita aftur út í verðlag í gegnum hækkanir á ýmsum vörum og þjónustu.
Það er langt því frá að ríkisstjórnin hafi verið leiðandi, við skulum bara segja eins og er: Reykjavík hefur auðvitað verið leiðandi í því að hækka gjaldskrár og ef einhver ætti að hafa gefið gott fordæmi þá er það Reykjavíkurborg sem hækkaði gjaldskrárnar hérna rétt upp úr miðju síðasta ári, gerði það bara mjög myndarlega og sagðist ætla að gera meira undir lok árs. Það var nú bara þannig að það fór lítið fyrir því af því að það tekur enginn eftir því hvað er að gerast í fjármálum í Reykjavík lengur.
Allar tillögur sem hv. þingmaður nefnir, að lækka gjöld á eldsneyti o.s.frv., setja meira fjármagn í húsnæði, eru bara dæmi um það sama og ég hef verið að segja hér: Þetta er meira eða minna allt saman innlegg í að auka þensluna, því miður. Þetta eru ekki góðar hugmyndir þó að þær geti, ef þær eru vel fjármagnaðar með skatttekjum á móti, gagnast ákveðnum hópum, eins og ríkisstjórnin hefur verið að gera þegar hún hefur verið að hækka einstaka (Forseti hringir.) stuðningsaðgerðir. Ég skal koma sérstaklega inn á tolla á matvæli á eftir og það er enginn að tala um að fara í einhvers konar slíka einhliða aðgerð.