153. löggjafarþing — 71. fundur,  1. mars 2023.

lækkun tolla og gjalda á innfluttar matvörur.

[15:27]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég get sannarlega tekið undir með hæstv. ráðherra um útgjaldabrjálæðið í Reykjavík og rekstrarhallann þar, sem ríkið hleypur reyndar aftur og aftur undir bagga með, með einhverjum stórundarlegum loforðum um að byggja helstu kosningaloforð Samfylkingarinnar í Reykjavík og núna væntanlega taka að sér héraðsskjalasafn Reykjavíkur í framhaldinu.

Hvað varðar tillögur um að bregðast við verðbólgunni þá velti ég því fyrir mér hvort hæstv. ráðherra telji það raunverulega til þess fallið að ýta undir þenslu að fólk geti keypt matvæli á aðeins lægra verði þegar verðbólgan er komin yfir 10%. Er það að mati hæstv. ráðherra meingölluð aðgerð að lækka gjöld á matvæli eða eldsneyti sem hefur fljótt áhrif út í allt samfélagið?

En ég hlakka til að heyra svar hæstv. ráðherra varðandi tollana, hvort hann geti slegið það út af borðinu hér að ríkisstjórnin sé að velta því fyrir sér að henda afleiðingum verðbólgunnar að miklu leyti yfir á bændur, þá stétt landsins sem hefur fengið hvað minnstar kjarabætur árum saman, með því að fella einhliða niður tolla á innfluttar landbúnaðarvörur.