lækkun tolla og gjalda á innfluttar matvörur.
Virðulegi forseti. Ég held að við höfum ágætisdæmi úr sögunni þegar við gerðum t.d. breytingar á tollum á grænmeti eins og agúrkum, þar sem við tókum niður tollverndina en færðum verndina yfir í beinan stuðning til bænda. Ég skal bara segja það eins og er að ég tel að við gætum staðið með innlendri framleiðslu með öðrum hætti en víðtækum tollahindrunum sem eru eins og veggur fyrir íslenska neytendur, án þess að það þurfi að bitna á innlendu framleiðslunni. Þá er ég að meina að við getum lækkað tollana og breytt þeim stuðningi sem felst í háum tollmúrum inn í landið yfir í beinar greiðslur til þeirra sem standa í framleiðslunni. (SDG: Þær koma ekki.) Auðvitað hangir þetta tvennt saman.
Það sem ég sé fyrir mér eru stórkostleg tækifæri fyrir íslenskan landbúnað, þ.e. ef við erum tilbúin til þess að sýna það í verki að við stöndum með þeirri hreinu gæðaframleiðslu þá sé óþarfi að vera með suma af þeim tollmúrum sem við erum með fyrir innflutning í dag (Forseti hringir.) og íslensk framleiðsla gæti blómstrað sem aldrei fyrr, sem er nákvæmlega það sem gerðist í tilviki agúrkuframleiðslu á Íslandi.