153. löggjafarþing — 71. fundur,  1. mars 2023.

kjör hjúkrunarfræðinga.

[15:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér talar hv. þingmaður um eina af grundvallarstéttum íslenska heilbrigðiskerfisins, hjúkrunarfræðinga, og hvetur til þess að við gerum betur við þá en aðra opinbera starfsmenn sem við þurfum að semja við. Ég spyr: Hvers eiga sjúkraliðar að gjalda? Eða kennarar? Hvað með læknana? Hvað með aðra opinbera starfsmenn sem eiga nú í samtölum við ríkið um að fá bætt kjör? Er hv. þingmaður að segja að við eigum að forgangsraða með þeim hætti að hjúkrunarfræðingar einir fái hækkanir umfram það sem er verið að semja um á almennum markaði, að þeir einir eigi að gera það? En til þess að skapa það svigrúm þá þurfum við að semja um minna fyrir aðra. (Gripið fram í.) Þetta er alveg dæmigerð ræða. Til þess að fara ekki fram úr því heildarsvigrúmi sem almenni markaðurinn hefur skapað þá er alveg augljóst að ef sumir eiga að fá meira en aðrir þá þurfa hinir að fá minna. Þetta er bara lögmál, nema menn vilji, eins og oft er gert í pólitíkinni, hunsa fyrsta lögmál hagfræðinnar sem er lögmálið um skort, að það er ekki endalaust til. Það er auðvitað vinsælt í þessum sal, umfram alla aðra sali á Íslandi, að vilja hunsa það lögmál og þykjast geta leyst hvers manns vanda með því að ausa úr sjóðum ríkissjóðs endalaust og skapa sjálfum sér vinsældir, a.m.k. tímabundið.

Svar mitt við spurningunni er þetta: Allir opinberir starfsmenn eiga rétt á því að fá kjarabætur í samræmi við það svigrúm sem er til staðar. Við munum síðan leita lausna til að mæta sérþörfum hvers hóps fyrir sig í þeim samningum sem nú standa yfir í ágætisjafnvægi við samninganefnd ríkisins vegna kjarasamningagerðar. Þar eru mörg mál uppi á borðum. Við getum ekki lofað því, sem hv. þingmaður er að kalla eftir, að við ætlum að taka einstakar stéttir fram yfir aðrar vegna þess einfaldlega að það er nákvæmlega engin sátt um það.