153. löggjafarþing — 71. fundur,  1. mars 2023.

kjör hjúkrunarfræðinga.

[15:34]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Já, ég segi þetta bara, ekki flóknara en það. Ég segi: Til dæmis hjúkrunarfræðinga. Það var það sem ég sagði: Til dæmis. Ég er alveg sammála því að það megi taka sjúkraliða og lækna og ýmsa svoleiðis líka, en ég nefndi dæmi um það að það var niðurstaða gerðardóms sem sagði að þarna væri starfsstétt sem væri vanmetin. Ég er að biðja um að við horfum til þess, hvorki meira né minna en það — mjög einfalt mál. Hérna erum við að tala um forgangsröðun og ég vil sjá forgangsröðun stjórnvalda, ekki til að gera upp á milli einstakra starfsstétta innan heilbrigðiskerfisins heldur upp á ákveðna sanngirni. Hvar er það sem stjórnvöld eru að forgangsraða umfram heilbrigðiskerfið, því að heilbrigðiskerfið virkar ekki ef það er ekki starfsfólk þar. Það er svo einfalt. Heilbrigðiskerfið virkar ekki ef það eru engir sjúkraliðar, heilbrigðiskerfið virkar ekki ef það eru engir hjúkrunarfræðingar og virkar ekki ef það eru engir læknar. Ef við tökum eina af þessum starfsstéttum burt þá virkar ekkert af þessu. (Forseti hringir.) Við þurfum að huga að því að niðurstaða gerðardóms er að þarna sé vanmat í gangi, og já, það þarf að svara því.