svör við fyrirspurnum.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp af því að mér finnst svo makalaust að heyra að það sé vísað í Stjórnarráðið eins og það fagni eins árs afmæli nú um stundir. Stjórnarráð Íslands er auðvitað eldra en svo og stofnanaminnið þar eyddist ekki þó að ríkisstjórn hafi endurnýjað heiti. Forseti hlýtur að veita Alþingi liðsinni í því að fá fram svör við spurningum sínum. Þetta er eitt af þeim verkfærum sem við höfum og þessi svör forseta Alþingis finnst mér allsendis ófullnægjandi, að ætla að kasta inn handklæðinu hér einu sinni sem oftar og neita að standa með Alþingi. Svo er kannski annað að það er ekki þannig að stofnanaminni hafi eyðst en nú er mikið verið að tala um eyðslu og almenningur eigi að gæta sín í þeim efnum og þá er kannski ástæða til að halda því til haga hvað nýtt Stjórnarráð, ný ráðuneyti og nýir ráðherrastólar kostuðu ríkisfjármálin og hvaða afleiðingar það er að hafa á heimili landsins í dag.