Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 71. fundur,  1. mars 2023.

svör við fyrirspurnum.

[15:55]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Málaflokkar flakka á milli ráðuneyta fram og til baka. Seðlabankinn hefur t.d. flakkað á milli forsætisráðuneytis og fjármálaráðuneytis og jafnréttismálin og umhverfismálin og hvað það nú er allt saman. Ráðherrar þurfa samt að svara fyrir málaflokkinn þó að hann hafi sögulega séð verið í öðru ráðuneyti. Um það snýst þessi fyrirspurn, þ.e. að ráðherra svari fyrir þann málaflokk sem ráðherra ber ábyrgð á þrátt fyrir að sögulega séð hafi sá málaflokkur verið einhvers staðar annars staðar. Það er einfaldlega verið að biðja um söguleg gögn. Söguleg gögn geta ekki fuðrað upp bara af því að það er nýr merkimiði á byggingunni. Það getur ekki gengið. Ég leita liðsinnis forseta til að fá úr því skorið hvað það er eiginlega sem er í gangi hér.