Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 71. fundur, 1. mars 2023.
svör við fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Það væri óskandi að hv. þingmenn, sumir sem eru hér staddir, hefðu nú dug í sér að kynna sér málin aðeins betur áður en þeir koma hingað í ræðustól og reyna að koma fram með einhverja tortryggni í garð ráðherra. Ef við ætlum að bæta stjórnmálin, nútímavæða þau og standa okkar plikt gagnvart þjóðinni, þá mættu sumir þingmenn hér inni hafa það í huga áður en þeir koma hingað og reyna að slá ryki í augu þeirra sem hér sitja inni.